Keppni
Just Wingin It vann til fimm verðlauna í Buffalo
Just Wingin It vann til fimm verðlauna á National Buffalo Wing Festival, sem haldin var í Buffalo í New York um helgina. Hátíðin fagnaði 25 ára afmæli sínu í ár og komu þátttakendur víða að.
Teymið seldi rúmlega 11.500 kjúklingavængi á tveimur dögum og hlaut fyrir vikið verðlaunin „Festival Favorite“ fyrir flesta selda vængi.
Þá var Bayside Buffalo Lemon Honey-sósa staðarins valin besta sósa hátíðarinnar og hlaut verðlaunin „Best in Show“. Alls kepptu meira en 100 sósur um titilinn.
Sósan hefur ekki verið á matseðli Just Wingin It undanfarna sex mánuði, en aðstandendur staðarins gefa til kynna að breyting verði þar á innan skamms.
Þrenn önnur verðlaun
Í frétt bandaríska miðilsins Erie News Now kemur fram að Just Wingin It hafi einnig hlotið fyrstu verðlaun í flokki sterkra bragðtegunda fyrir Ghost Pepper Wing Tang Clan-sósuna.
French Toast Wing hlaut jafnframt önnur verðlaun í vali unga fólksins og þriðju verðlaun í flokki sætra bragðtegunda.
Justin Shouse, eigandi Just Wingin It, er fæddur og uppalinn í Erie í Pennsylvaníu. Hann flutti til Íslands fyrir 21 ári og hefur síðan byggt upp veitingarekstur hér á landi þar sem bragð og hefðir frá vesturhluta New York og norðvesturhluta Pennsylvaníu eru í forgrunni.
Justin sagði árangurinn hafa verið afrakstur góðrar liðsheildar. Í bandaríska teyminu voru meðal annars veitingamenn og aðrir liðsmenn með sterk tengsl við Erie.
Meðal gesta sem smökkuðu vængi Just Wingin It á hátíðinni var Khalil Shakir, leikmaður Buffalo Bills í bandarísku NFL-deildinni.
Aðstandendur Just Wingin It þökkuðu bæði íslenska og bandaríska teyminu fyrir þeirra framlag, auk starfsfólks og skipuleggjenda hátíðarinnar.
Myndir: Facebook / Just Wingin It
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn3 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Markaðurinn2 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn2 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Keppni3 dagar síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau
-
Markaðurinn4 dagar síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins






