Vertu memm

Vín, drykkir og keppni

Frá kartöflum yfir í finnskt bygg

Birting:

þann

Frá kartöflum yfir í finnskt bygg - Eimingarverksmiðja Koskenkorva

Finnskt bygg er undirstaða framleiðslunnar hjá Koskenkorva.

Eimingarverksmiðja Koskenkorva, sem staðsett er í þorpinu Koskenkorva í Suður-Österbotten í Finnlandi, á sér langa sögu sem nær aftur til áranna um 1930 og 1940.

Finnska áfengis einkasalan, Oy Alkoholiliike Ab, keypti land af hjónunum Jaakko og Elisabet Koskenkorva. Á þessu landi var eimingarverksmiðja Koskenkorva reist og þar fór fyrsta tilrauna eimingin fram vorið 1941.

Árið 1953 var þorpið Koskenkorva í miklum blóma. Finnskt efnahagslíf var að ná sér eftir erfið stríðsár og árið áður höfðu Ólympíuleikarnir í Helsinki glatt og sameinað þjóðina. Í Koskenkorva hafði verið reist glæný eimingarverksmiðja og fyrsta tilrauna eimingin hafði farið fram vorið 1941.

Árið 1953 hófst framleiðsla á sterku áfengi fyrir alvöru. Fyrsta Koskenkorva-varan, Koskenkorva Viina, kom á markað sama ár. Hugmyndin var að drykkinn mætti nota í blandaða drykki eða drekka hann vel kældan sem snaps. Árið 1960 varð Koskenkorva vinsælasta sterka áfengið í Finnlandi. Enn þann dag í dag er Koskenkorva eitt mest selda sterka áfengismerki Finnlands.

Í upphafi var Koskenkorva eimað úr kartöflum, en fljótlega var skipt yfir í bygg, sem óx vel á frjósömum og næringarríkum ökrum við ströndina.

Á stuttu sumarmánuðunum var byggið geymt í hlöðum og korngeymslum svo birgðirnar entust yfir langan og harðan veturinn. Í upphafi var Koskenkorva aðeins framleitt í einni stærð – í hálfs lítra flösku. Á miðanum á flöskunni mátti sjá mynd af þeim fjölmörgu hlöðum og ökrum sem enn í dag setja svip sinn á landslagið í Koskenkorva.

Í Koskenkorva hefur þekkingin og handverkið við ræktun byggs gengið frá einni kynslóð til þeirrar næstu. Allir þeir bændur sem í dag leggja uppskeru sína til framleiðslu Koskenkorva bera með stolti sérþekkingu sína á þeim sérstöku byggafbrigðum – á borð við Kaarle og Elmeri – sem henta einstaklega vel til framleiðslu á hágæða vodka, framúrskarandi sterkju og næringarríku fóðri fyrir stór nautgripabú á svæðinu.

Koskenkorva, eða Kossu eins og það er venjulega kallað, er mjög tær hágæða vodki frá Finnlandi. Eimaður yfir 200 sinnum (nei þetta er ekki villa), framleiddur úr lindarvatni, mjög litlum sykri, og byggi frá landareignum fyrirtækisins. Um það bil 18.200 korn af úrvals byggi eru notuð til að búa til bara ½ lítra flösku af Koskenkorva.

Mynd: koskenkorva.com

Almenn umfjöllun, víndómar og viðtöl, blandað ýmsum fróðleik um Ísland, mat, drykki og fleira því tengt.

Auglýsingapláss

Vínkjallarinn

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:

Mest lesið