Keppni
Róbert Aron Proppé keppir fyrir Íslands hönd á Evrópumótinu í kokteilagerð
- Róbert Aron Proppé
Róbert Aron Proppé, Íslandsmeistari í kokteilagerð, er kominn til Protaras á Kýpur þar sem hann tekur þátt í Evrópumótinu í kokteilagerð. Með honum í för er Pétur Hafsteinn Úlfsson Kolka, ritari Barþjónaklúbbs Íslands.
Róbert keppir með kokteilinn Pillow Talk, sem inniheldur Gin Mare, Monin ástaraldin-puré, Monin kókoshnetusýróp og engiferbjór. Drykkurinn er skreyttur með greipaldinshýði og limeblaði festu með kokteilapinna. Keppt er í svokölluðum „Long Drink“ flokki, þar sem drykkir eru yfirleitt framreiddir í háum glösum og fylltir upp með gosi eða öðru áfyllingarefni.
„Ég er fullur tilhlökkunar,“
segir Róbert, sem er í toppformi fyrir keppnina.
„Ég náði topp 15 á heimsmeistaramótinu í fyrra og hlaut verðlaun í mínum aldursflokki, þannig að nú stefni ég á að taka þetta alla leið.“
Auk þess að keppa í drykkjagerð þarf Róbert að þreyta skriflegt próf í kokteilafræðum og er hann einnig metinn í faglegum vinnubrögðum við framreiðslu á kokteilnum sínum.
Myndir: bar.is
-
Keppni5 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn5 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Markaðurinn4 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni5 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Keppni3 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Frétt6 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð
-
Markaðurinn3 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana






