Uppskriftir
Fullkominn smáréttur: Gratíneraður Búri með timían og hunangi sem bráðnar í munni
Ég veit fátt betra en bakaðan ost og þessi er svo einfaldur og ljúffengur. Búri er fullkominn til að baka, ótrúlega bragðmildur en samt svo akkúrat passlegur. Ég geri þennan rétt aftur og aftur og hann smellpassar sem smáréttur fyrir 4-6.
Innihald
1 stk. Óðals Búri
1 stk. ferskt timían, saxað
2 msk. hunang
Meðlæti
nýbakað baguette
Aðferð
- Hitið ofn á grillstillingu og 250 gráður.
- Skerið ostinn í litla teninga og setjið í lítið eldfast mót. Stráið timían yfir
- Setjið undir grill í ofni og bakið þar til osturinn er bráðnaður og gullinbrúnn, eða í um 6-8 mínútur.
- Takið úr ofninum og hellið hunangi yfir.
- Berið fram strax með baguette.
Höfundur: Helena Gunnarsdóttir – gottimatinn.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanÍslenskur matreiðslumaður fær Michelin-viðurkenningu fyrir nýjan veitingastað í Vilníus
-
Keppni1 dagur síðanFagfólk skaraði fram úr í árlegri tertukeppni Kaffi Krúsar og Konungskaffis
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanSteinunn og Sæþór fagna 25 ára afmæli Narfeyrarstofu
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanSjaldgæft vínsafn Stalíns fer á uppboð í Georgíu
-
Markaðurinn1 dagur síðanEftirrétturinn sem kaffiunnendur hafa beðið eftir
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanTrump í vínstríði við dyggan stuðningsmann
-
Frétt2 dagar síðanEiturþörungar dafna vel í sjónum, varað við kræklingatínslu
-
Frétt3 dagar síðanMatvælasjóður hefur veitt 3,7 milljarða í styrki frá 2020




