Keppni
Heimsmeistaramót Barþjóna 2025 hafið: Barþjónar frá 97 löndum keppa í Kólumbíu

Róbert Aron Proppé Garðarsson ásamt fríðu föruneyti.
F.v. Árni Gunnarsson, Elna María Tómasdóttir, Róbert Aron Proppé Garðarsson, Teitur Riddermann Schiöth og Ómar Vilhelmsson
Heimsmeistaramótið í kokteilagerð, World Cocktail Championship (WCC) 2025, er nú formlega hafið í hinni sögulegu Kólumbísku borg Cartagena. Þar eru saman komnir barþjónar frá 97 löndum sem keppast um að hljóta titilinn besti barþjónn heims.
Mótið, sem haldið er af International Bartenders Association (IBA), stendur yfir í fjóra daga og lýkur með glæsilegri lokaathöfn og verðlaunaafhendingu næstkomandi fimmtudag.
Róbert Aron Proppé Garðarsson: Undirbúningur í fullum gangi fyrir þriðjudaginn
Fulltrúi Íslands, Róbert Aron Garðarsson Proppé, er mættur til Cartagena og hefur verið á fullu að undirbúa sig síðan hann kom á sunnudaginn. Róbert Aron keppir í hinum virta flokki WCC Classic Preliminary – Before Dinner.
Róbert Aron keppir með drykkinn sinn Prelude, en nafn hans vísar til hlutverks kokteilsins sem forleiks fyrir máltíð (Before Dinner). Drykkurinn er samsettur til að örva matarlystina með jafnvægi af sætum, beiskum og ferskum tónum.
Hann inniheldur Espolon Reposado Tequila, Campari, Monin Timur Berry Cordial og er toppaður með íslensku sódavatni.
Í tilkynningu frá Barþjónaklúbbi Íslands að Róbert mun stíga á svið á þriðjudaginn, 25. nóvember í sínum flokki:
- Hvenær: Þriðjudagur 25. nóvember ÍSLENSKUR TÍMI: 21:30–23:00
Við óskum Róberti Aroni Proppé Garðarssyni, fulltrúa Íslands, góðs gengis í keppninni og vonum að hann tryggi sér sæti í úrslitum mótsins sem fara fram á miðvikudaginn.
Meðfylgjandi eru myndir af íslenska hópnum sem er Róberti til halds og trausts.
Myndir: Ómar Vilhelmsson
-
Markaðurinn6 dagar síðanSuperMeals heldur áfram að þróast: kiosk-lausn tilbúin og símaveski á loka metrum
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanVölundur Snær opnar nýjan veitingastað í sveitinni
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanNýtt mötuneyti opnað hjá Verkís á Akureyri – Myndir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanPaul Cunningham opnar sig um heilsuna og lífið eftir aflimun
-
Markaðurinn3 dagar síðanInnnes hefur samstarf við þýskan mjólkurrisa
-
Markaðurinn4 dagar síðanSvona gerir þú vinsælu sítrónukökuna frá Starbucks heima
-
Frétt2 dagar síðanAlþingi samþykkir róttækar breytingar á heilbrigðiseftirliti landsins
-
Markaðurinn5 dagar síðanNýtt KEA skyr sækir innblástur í einn þekktasta eftirrétt heims




