Markaðurinn
Wolt hefur sendingar á Stokkseyri og Eyrarbakka
Sendingarþjónsta Wolt sem hóf starfsemi sína í Reykjavík í maí árið 2023, færir nú út kvíarnar austur fyrir fjall og hefur sendingar í bæjarfélögunum tveimur í grennd við Selfoss.
Wolt hóf sendingar á Selfossi og í Hveragerði í nóvember árið 2023, en frá og með 8. janúar byrjaði sendingarþjónustan að senda mat frá Selfossi til Stokkseyrar og Eyrarbakka. Með því að fjölga afhendingarstöðum gefur Wolt íbúum bæjarfélagana og nærliggjandi bæja meðfram veginum tækifæri til að njóta þægindanna sem sendingarþjónustan býður upp á.
Með stækkuninni geta viðskiptavinir á Stokkseyri og Eyrarbakka því pantað frá 16 vinsælum stöðum á Selfossi sem hafa ýmist verið lengi í uppáhaldi hjá heimamönnum eða eru nýjir og alþjóðlegir. Tilgangur framtaksins er að auka þægindi íbúa í bæjarfélögunum og styðja við aukinn vöxt veitingastaða og fyrirtækja á Selfossi.
„Við erum himinlifandi yfir því að bæta Stokkseyri og Eyrarbakka við hóp afhendingarstaða og gera íbúum þannig kleift að njóta síns uppáhalds matar frá Selfossi án þess að þurfa að fara úr húsi. Stækkunin er hluti af markmiði okkar sem snýr að því að tengja samfélög og styðja við staðbundin fyrirtæki um allt Ísland,“
segir Jóhann Már Helgason, forstöðumaður viðskiptastýringar hjá Wolt á Íslandi.
Áður sendi Wolt ekki lengra frá Selfossi en til Tjarnabyggðar, en bæta nú við svæðinu meðfram Eyrarbakkavegi sem liggur að Stokkseyri og Eyrarbakka.
Mest pantaði maturinn
Á síðasta ári var steiktur kjúklingur vinsælasti rétturinn á Selfossi, en heilt yfir Ísland voru hamborgarar vinsælastir. Þrír vinsælustu veitingastaðirnir (ekki í sérstakri röð) voru Menam Thai, KFC og Röstí. Allir ættu þó að geta fundið eitthvað við sitt hæfi þar sem veitingastaðir á Selfossi bjóða upp á hamborgara, fisk, núðlur, pasta og grillmat, svo fátt eitt sé nefnt.
- Kjúklingur
- Tælenskur matur
- Evrópskur matur
- Hamborgarar
- Samlokur
Til viðbótar við að panta frá veitingastöðum geta íbúar Stokkseyrar og Eyrarbakka nú pantað snarl og matvöru frá Krambúðinni ásamt bakkelsi frá GK bakaríi.
Hvernig fyrirkomulagið virkar:
- Viðskiptavinir á Stokkseyri, Eyrarbakka og meðfram Eyrarbakkavegi geta nú notað vefsíðu Wolt, wolt.com, eða smáforritið til að skoða og panta frá samstarfsaðilum á Selfossi.
- Pantanir eru útbúnar á staðnum og sendar beint til viðskiptavina af fagliði Wolt sendla.
- Sendingartímar eru sérstaklega reiknaðir til að tryggja að matur skili sér fljótt og haldi gæðum.
- Viðskiptavinir geta fylgst með sendingum í rauntíma í smáforritinu.
-
Bocuse d´Or4 dagar síðanSnædís keppir í Bocuse d´Or í stað Hinriks
-
Keppni5 dagar síðanÍslenskir og hollenskir veitingastaðir í úrslitum á National Fish & Chip Awards 2026
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanBrasa tekur á móti fyrstu gestum í Smáratorgi. Sjáðu stemninguna frá opnunarpartýinu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanVendoro einfaldar pantanir og samskipti í veitingageiranum: Árni Þór Árnason matreiðslumaður segir frá þróun appsins
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanSmassaður jólaborgari með purusteik og camembert sló í gegn – Myndir
-
Markaðurinn15 klukkustundir síðanÓska eftir rekstraraðila fyrir 65 herbergja heilsárshótel á landsbyggðinni
-
Markaðurinn15 klukkustundir síðanErt þú aðilinn sem við erum að leita að?
-
Markaðurinn5 dagar síðanParmaskinka á 50% afslætti hjá Stórkaup







