Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Myndir frá formlegri opnun á nýjum stað hjá Mat og drykk
Tímamót urðu hjá veitingastaðnum Mat og drykkur fyrr í vikunni þegar reksturinn fluttist yfir í nýtt húsnæði að Mýrargötu 31, þar sem bakaríið Brikk var áður til húsa. Staðurinn hefur verið starfræktur í Allianz-húsinu á Grandagarði í um áratug, en nýja staðsetningin er þó ekki langt undan, rétt handan við hornið frá fyrri heimkynnum.
Flutningurinn markar ákveðin kaflaskil í sögu staðarins, sem hefur fest sig í sessi sem einn af þekktari veitingastöðum borgarinnar. Þrátt fyrir breytinguna heldur starfsemin áfram á svipuðum slóðum og gestir þurfa því ekki að leita langt til að finna staðinn á nýjum stað.
Yfirkokkurinn, Helga Haraldsdóttir, er áfram við stjórnvölinn og heldur utan um stefnu eldhússins.
Að tilefni opnunarinnar í nýju húsnæði var boðið upp á veglega veislu þar sem gestir gátu kynnt sér aðstöðuna og fagnað þessum nýja kafla í rekstri staðarins.
Myndir: Facebook / Matur og Drykkur
-
Markaðurinn5 dagar síðanRekstur og húsnæði til sölu
-
Markaðurinn5 dagar síðanVilja spara fyrirtækjum tíma og kostnað
-
Keppni1 dagur síðanSiggi Chef hreppti titilinn Besti götubitinn 2026
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanFræðslunámskeið fyrir veitingafólk um framleiðslu, kokteilagerð og klaka
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanNý bók fjallar um keppni þar sem Íslendingar hafa slegið í gegn
-
Frétt7 dagar síðanStærsti matarviðburður landsins fram undan í Hljómskálagarðinum
-
Starfsmannavelta4 dagar síðanSkúrinn í Stykkishólmi stefnir á lokun eftir 11 ára rekstur
-
Markaðurinn17 klukkustundir síðanInnnes auglýsir spennandi sölustarf

























