Íslandsmót barþjóna
Reykjavík Cocktail Week lauk með úrslitum og hátíðarkvöldverði í Gamla Bíó – Myndaveisla
- Leó Snæfeld fagnar sigrinum vel og innilega
- Leó Snæfeld
Í gærkvöldi lauk kokteilahátíðinni Reykjavík Cocktail Week sem hófst á mánudaginn síðastliðinn. Hátíðin stóð yfir alla vikuna og bauð upp á fjölbreytta dagskrá, þar sem keppnir, smökkunarviðburðir og uppákomur fóru fram víðs vegar um borgina.
Lokakvöldið fór fram í Gamla Bíói þar sem úrslit Íslandsmeistarakeppni barþjóna fór fram samhliða hátíðarkvöldverði. Klúbbur Matreiðslumeistara sá um matinn en boðið var upp á þriggja rétta máltíð með hægelduðum reyktum laxi í forrétt, nautakjöti í aðalrétt og volgri döðluköku í eftirrétt.
Alls tóku ellefu keppendur þátt í forkeppni Íslandsmeistarakeppninnar fyrr í vikunni, þar sem fimm komust áfram í úrslit. Keppnin var krefjandi og sigurvegari ákvarðaðist út frá samanlögðum stigum í hraðakeppni, kunnáttuprófi, lyktar- og bragðprófi auk klassískrar framreiðslu kokteila.
Sigurvegari Íslandsmeistaratitilsins var Leó Snæfeld frá Jungle með drykkinn „Þriðja kryddið“. Í öðru sæti varð Pétur Hafsteinn Kolka Úlfsson frá OTO með „Atomic Joe“ og Grétar Matthíasson frá Blik Bistro hafnaði í þriðja sæti með „Yuzu Bean“. Þar á eftir komu Elvar Halldór Hróarr Sigurðsson og Björg Elva Friðfinnsdóttir frá Geira Smart með drykkinn „Firefly“.
Þemakeppnin fór einnig fram á hátíðinni þar sem þrír keppendur kepptu til úrslita. Þemað í ár var „Ekkert mál!“ og lagði áherslu á skapandi framsetningu í óhefðbundnum ílátum. Þar sáust kokteilar meðal annars bornir fram í kransakökum, vatnsbyssum og blómapottum. Svanhvít Thea Árnadóttir frá Veðri sigraði með drykkinn „Marsípaník“, Heimir Morthens frá Drykk varð annar með „Núðluna“ og Georg Sillat frá Tipsý hafnaði í þriðja sæti með „Double Kick“. Jungle var valinn kokteilabar ársins 2026 í „People’s Choice“ kosningu.
Alls tóku rúmlega þrjátíu barþjónar þátt í forkeppnum hátíðarinnar. Þá voru einnig veitt sérstök verðlaun þar sem Pétur Hafsteinn var valinn fyrir fagleg vinnubrögð, Leó Snæfeld hlaut verðlaun fyrir besta útlit drykkjar og besta drykkinn, og Freyja Kvaran fékk viðurkenningu fyrir frumlegasta ílátið í þemakeppninni. Drykkur ársins á RCW var valinn hjá veitingastaðnum Veðri, „Strawberry Cream Gimlet“.
- Herbert Guðmundsson
Yfir fjörutíu staðir tóku þátt í hátíðinni og buðu upp á sérstaka kokteilaseðla í tilefni hennar. Þá stóð almenningi til boða fjölbreytt dagskrá um alla borg.
Söngvarinn Herbert Guðmundsson flutti lög á lokakvöldinu og að því loknu var haldið áfram með partý á Petersen svítunni í Gamla Bíó.
Meðfylgjandi myndir tók ljósmyndarinn Hafliði Breiðfjörð.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanGæti ÓX orðið fyrsti íslenski veitingastaðurinn með tvær Michelin-stjörnur?
-
Starfsmannavelta6 dagar síðanBrixton tekinn til gjaldþrotaskipta
-
Frétt4 dagar síðanDýrt Búrgúndí-vín fannst á ný eftir furðulegan vínþjófnað
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanMichelin-listinn á Íslandi helst óbreyttur, Kadeau fær þriðju stjörnuna
-
Keppni5 dagar síðanBarþjónar og fagfólk fagna sumrinu með alvöru stemningu
-
Markaðurinn3 dagar síðanNetlagersala Ásbjarnar hafin með allt að 75% afslætti
-
Markaðurinn3 dagar síðanHeinz sósur í 33 ml. Hentugt fyrir hótel, gistiheimili og veitingarekstur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanNýr veitingastaður opnar í Mosfellsbæ























