Vertu memm

Viðtöl, örfréttir & frumraun

Ný mathöll, fleiri verslanir og vinsælir viðburðir auka aðsókn í Smáralind

Birting:

þann

Smáralind

Mynd: Sindri Svan

Garðurinn mathöll, endurbætt Smárabíó, nýjar verslanir og viðburðir drífa áfram aukna aðsókn og styrkja Smáralind sem áfangastað fyrir verslun, veitingar og afþreyingu.

Mikil aukning hefur verið á heimsóknum í Smáralind frá lokum síðasta árs.  Á fyrsta ársfjórðungi 2026 jókst aðsókn um 21% samanborið við sama tímabil árið 2025 og er þetta jafnframt aðsóknarmesti fyrsti ársfjórðungur frá upphafi.

Endurspeglar þetta sterka stöðu Smáralindar og aukið aðdráttarafl hennar með breiðara framboði verslana, veitinga og afþreyingar.

Garðurinn mathöll opnaði í lok nóvember 2025 og hafa viðtökur farið fram úr væntingum. Frá opnun hefur aðsókn aukist jafnt og þétt; í desember mældist 17% aukning í gestafjölda og í mars 25% aukning. Frá opnun hafa um 300.000 manns borðað í Garðinum.

Garðurinn opnar í Smáralind með þrettán nýjum veitingastöðum

Garðurinn í Smáralind
Mynd: Róbert Arnar

Endurbætur á Smárabíói hafa einnig haft jákvæð áhrif á aðsókn, en tveir nýir bíósalir voru teknir í notkun í lok árs 2025 ásamt uppfærslu á eldri sölum. Þá hefur opnun nýrra verslana á borð við Mango, L’Occitane, Skincarelab og Kappahl styrkt verslanaúrval hússins.

Undanfarnar vikur hafa jafnframt einkennst af vel sóttum viðburðum, þar á meðal Kauphlaupi, Laufeylandi í tengslum við tónleika í Kórnum, heimsóknum íslenska karlalandsliðsins í handbolta og fótboltagoðsins Emile Heskey, auk Leikandi laugardags.

„Stefna Heima um að byggja upp og efla kjarnasvæði hefur skilað sér skýrt í þróun Smáralindar,“

segir Baldur Már Helgason, framkvæmdastjóri viðskipta Heima í tilkynningu.

„Með markvissum fjárfestingum höfum við þróað Smáralind í lifandi áfangastað þar sem verslun, þjónusta, afþreying og veitingar mynda sterka heild. Aukin aðsókn er bein afleiðing þessarar þróunar.

Opnun Garðsins hefur haft sérstaklega jákvæð áhrif á upplifun viðskiptavina og lengt dvalartíma þeirra, og samhliða hafa endurbætur á Smárabíói, fjölbreyttara úrval verslana og vel heppnaðir viðburðir styrkt stöðu Smáralindar sem miðpunktar mannlífs á höfuðborgarsvæðinu.

Þessi þróun undirstrikar að skýr sýn og markviss uppbygging á kjarnasvæðum eykur aðdráttarafl, fjölgar viðskiptavinum og skapar varanleg verðmæti til lengri tíma.“

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Vínkjallarinn

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið