Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Nýtt veitingasvæði rís í austurenda Smáralindar – 13 nýir veitingastaðir
Fasteignafélagið Heimar hefur nýverið sett af stað umfangsmiklar framkvæmdir í austurenda Smáralindar en þar á að rísa nýtt veitingasvæði. Áætlað er að 13 veitingastaðir opni á þessu nýja svæði í Smáralind fyrir lok árs 2025. Um verður að ræða allt frá skyndibita yfir í fínni veitingastaði sem einnig verða opnir á kvöldin.
Breytingarnar eru hluti af stefnumörkun Heima um að þróa Smáralind sem kjarna þar sem fólk sækir ólíka afþreyingu, mælir sér mót og á notalegar stundir með góðum mat. Kannanir meðal íbúa og þeirra sem starfa í nágrenni Smáralindar hafa leitt í ljós að eftirspurn er eftir slíkum áfangastað á svæðinu.
Miklar breytingar hafa orðið á þeim ríflega tuttugu árum sem Smáralind hefur starfað. Sem dæmi má nefna að tugþúsundir fermetra af atvinnu- og íbúðarhúsnæði hafa verið byggðir á síðustu fimm árum í næsta nágrenni.
Hönnun nýja veitingasvæðisins er í höndum Basalts arkitekta, sem meðal annars hönnuðu veitingasvæðið Hafnartorg Gallery sem staðsett er í miðbæ Reykjavíkur. Yfir ein milljón gesta hefur heimsótt það frá opnun þess fyrir tveimur árum síðan. Heimar telja að þessar breytingar geti hjálpað til við að höfða til nýrra viðskiptavinahópa og styrkt tengsl Smáralindar við nærumhverfið. Þá falla þær vel að stefnu Heima um að þróa kjarna þar sem fólk starfar, býr og sækir þjónustu.
Baldur Már Helgason, framkvæmdastjóri viðskipta Heima:
„Austurendi Smáralindar hýsti áður Vetrargarðinn og það svæði hefur nánast ekkert verið endurbætt frá upphafi Smáralindar. Við hönnun nýja veitingasvæðisins hefur mikil áhersla verið lögð á að skapa hlýlegt og glæsilegt umhverfi.
Með nýja veitingasvæðinu styrkist veitinga- og afþreyingaflóra Smáralindar enn frekar þar sem veitingastöðum í Smáralind fjölgar, úrval veitinga verður fjölbreyttara og mun höfða til ólíkra hópa í mismunandi erindagjörðum, allt frá hröðum og aðgengilegum mat yfir í hágæða matarupplifun.“
Á meðfylgjandi tölvuteiknuðum myndum má sjá áform arkitektastofunnar um nýja veitingarýmið.
Tölvuteiknaðar myndir og mynd af Smáralind: aðsent / Sindri Swan
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanFimm fagmenn, eitt kvöld og einstök matarupplifun
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanTveir þekktir matreiðslumeistarar ganga til liðs við Múlakaffi
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanBransa kvöld á Sumac á sunnudag
-
Markaðurinn5 dagar síðanGamla góða draumtertan sem klikkar aldrei
-
Markaðurinn4 dagar síðanDineout mælir með að kíkja á „Vorfögnuð á Austur-Indíafjelaginu“ í apríl
-
Markaðurinn6 klukkustundir síðanFullt var út úr dyrum á pylsugerðarnámskeiði landsliðs kjötiðnaðarmanna – Myndir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanHeimsklassa gestakokkar á MATEY í maí
-
Markaðurinn3 dagar síðanIðan flytur tímabundið starfsemi sína að Stórhöfða







