Markaðurinn
Dineout mælir með að kíkja á „Vorfögnuð á Austur-Indíafjelaginu“ í apríl
Austur-Indíafjelagið var nýverið valið „Best Goddam Restaurant 2026“ í Best of Reykjavík hefti The Reykjavík Grapevine.
Af því tilefni heldur Austur-Indíafjelagið sérstakan vorfögnuð út apríl og býður upp á hátíðarseðil sem endurspeglar það besta úr eldhúsi staðarins. Veitingastaðurinn hlaut einnig viðurkenninguna 2025 sem og árin 2023 og 2022.
„Það hefur verið okkar vani á Austur-Indíafjelaginu að horfa ávallt fram á veginn. Að reyna stöðugt að bæta okkur og halda áfram að eiga erindi við Reykvíkinga og gesti borgarinnar.
En okkur þykir líka mikilvægt að gleðjast við tilefni sem þessi. Það er mikill heiður að hljóta enn viðurkenningar sem þessar, jafnvel þótt við höfum verið í rekstri í rúma þrjá áratugi.
Því fögnum við nú með gestum Austur-Indíafjelagsins, sem hafa stutt við okkur í öll þessi ár og hvetja okkur áfram til góðra verka,“
segir Chandrika Gunnarsson, eigandi Austur-Indíafjelagsins.
Á hátíðarseðlinum má meðal annars finna Kaja Gosht Masala, þeirra útgáfu af hinum þjóðþekkta rétti „kjöt í karrý“, Kalmi Kebab kjúkling úr tandoori ofninum og fleira.
Finna má frekari upplýsingar um matseðilinn á austurindia.is, en hann er fáanlegur bæði með og án drykkjapörunar.
Bókanir og nánari upplýsingar á dineout.is.
11.990 kr. á mann / 17.990 kr. með drykkjapörun.
Matseðillinn er í boði 16.-30. apríl og er afgreiddur fyrir allt borðið.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Markaðurinn3 dagar síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Keppni5 dagar síðanMikill skortur á fagmenntuðum framreiðslumönnum – fimm í námi við VMA
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanOmegn & Venner taka yfir SKÁL! við Njálsgötu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanMetnaðarfullur veitingastaður Róót opnar í Höfðatorgsturni
-
Markaðurinn5 dagar síðanGerðu verðsamanburð áður en þú kaupir






