Food & fun
Food & Fun 2026: Allar bókanir fara fram á Dineout í ár

Food & Fun 2026 verður í samstarfi við Dineout
F.v. Óli Hall, framkvæmdastjóri Food & Fun, Siggi Hall, einn af stofnendum Food & Fun og Inga Tinna Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Dineout
Í ár fara allar bókanir á Reykjavík Food & Fun 2026 fram í gegnum Dineout. Með því samstarfi fá gestir einn sameiginlegan stað til að skoða þátttökustaði og tryggja sér borð á hátíðinni.
Reykjavík Food & Fun hefur á undanförnum árum skapað sér sess sem einn af þeim viðburðum sem veitingaáhugafólk hlakkar mest til á hverju ári. Hátíðin sameinar íslenska veitingastaði og erlenda gestakokka í tímabundnum matseðlum og upplifunum sem aðeins eru í boði á meðan hátíðin stendur yfir.
Í ár verður Dineout bókunarvettvangur Food & Fun, þar sem allir þátttökustaðir verða aðgengilegir á einum stað. Gestir geta þar skoðað hvaða veitingastaðir taka þátt í hátíðinni, kynnt sér framboðið og bókað borð á einfaldan hátt, bæði í appinu og á vefnum.
Samstarfið snýst fyrst og fremst um að gera Food & Fun upplifunina einfaldari og þægilegri fyrir gesti. Með því að hafa allar bókanir á einum stað verður auðveldara að sjá hvað er í boði, bera saman valkosti og plana kvöldin á hátíðinni.
„Það er gaman að sjá hvað Food & Fun er orðið stór hluti af veitingaárinu hjá mörgum. Við erum stolt af samstarfinu í ár og hlökkum til að taka þátt í að tengja gesti og veitingastaði saman í gegnum Dineout.“
Segir Inga Tinna Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Dineout.
Opnað verður fyrir sérstaka Food & Fun bókunarsíðu á Dineout í dag fimmtudaginn 12. febrúar. Mikil eftirspurn hefur verið eftir borðum á hátíðinni undanfarin ár og bókanir hafa farið hratt af stað þegar þær opna. Gestum er því ráðlagt að vera snemma á ferðinni.
Bókanir fara fram á dineout.is og í Dineout appinu.
Nánari upplýsingar um hátíðina: foodandfun.is
-
Markaðurinn4 dagar síðanRekstur og húsnæði til sölu
-
Markaðurinn4 dagar síðanVilja spara fyrirtækjum tíma og kostnað
-
Frétt7 dagar síðanBrotist inn í vinsælt sælkerabakarí í Reykjavík
-
Frétt7 dagar síðanÁttu þessa kokteilsósu? Hún hefur verið innkölluð
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanFræðslunámskeið fyrir veitingafólk um framleiðslu, kokteilagerð og klaka
-
Frétt6 dagar síðanStærsti matarviðburður landsins fram undan í Hljómskálagarðinum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun16 klukkustundir síðanNý bók fjallar um keppni þar sem Íslendingar hafa slegið í gegn
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanSkúrinn í Stykkishólmi stefnir á lokun eftir 11 ára rekstur



