Vertu memm

Nemendur & nemakeppni

Þessi hrepptu titilinn matreiðslu- og framreiðslunemar ársins 2016

Birting:

þann

Nemakeppni í matreiðslu og framreiðslu 2016

F.v. Gréta Sóley Arngrímsdóttir, Alma Karen Sverrisdóttir, Kristinn Gísli Jónsson og Ásdís Björgvinsdóttir.
Sigursæll hópur, en þau koma til með keppa á Norrænu nemakeppnina í Helsinki í apríl 2017.

Nemakeppni í matreiðslu og framreiðslu fór fram í Hótel- og matvælaskólanum dagana 16. og 23. nóvember sl.  Forkeppni var haldin viku fyrr eða miðvikudaginn 16. nóvember sl. vegna fjölda þátttakenda. Í forkeppninni kepptu 21 um að komast í úrslitakeppnina í matreiðslu þann 23. nóvember sl. en fimm stigahæstu keppendurnir komust áfram í úrslitakeppnina.

Keppendur í matreiðslu áttu að matreiða tvo rétti; fiskrétt og eftirrétt fyrir tvo einstaklinga.  Þeir áttu að hanna réttina og öll aðferðafræði og framsetning átti að byggja á klassískum aðferðum og næringarfræðilegum áherslum.

Í framreiðslu fólst keppni nemanna í því að dekka upp fjögurra rétta kvöldverðaborð með vínum fyrir tvo gesti; í blöndun drykkja; í servéttubrotum og ýmsum fagbóklegum þáttum.

Nemakeppni í matreiðslu og framreiðslu 2016

Kristinn Gísli Jónsson og Ásdís Björgvinsdóttir

Í matreiðslu voru hæst þau Ásdís Björgvinsdóttir, nemi á Sjávargrillinu. Meistari hennar er Gústav Axel Gunnlaugsson og Kristinn Gísli Jónsson nemi á Bláa lóninu.  Meistari hans er Ingi Þórarinn Friðriksson.

Nemakeppni í matreiðslu og framreiðslu 2016

Gréta Sóley Arngrímsdóttir og Alma Karen Sverrisdóttir. Á milli þeirra er Sigrún Þormóðsdóttir meistarinn þeirra.

Í framreiðslu voru hæstar þær Alma Karen Sverrisdóttir nemi á Icelandair Hótel Natura og Gréta Sóley Arngrímsdóttir nemi á Icelandair Hótel Natura. Meistari þeirra er Sigrún Þormóðsdóttir.

Að nemakeppninni standa Samtök ferðaþjónustunnar, SAF,  Matvæla- og veitingafélag Íslands, MATVÍS og  Hótel- og matvælaskólinn í Kópavogi.

Sigurvegararnir keppa fyrir hönd Íslands í Norrænu nemakeppninni sem fer fram í Helsinki dagana 21. og 22. apríl 2017.

 

Myndir:  Ólafur Jónsson, sviðsstjóri matvæla- og veitingasviðs.

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið