Keppni
Svona lítur Eftirréttur ársins 2015 út | „..keppnin hefur vaxið ár frá ári og er gæðastaðallinn mjög hár“
Eins og fram hefur komið þá fór fram keppnin Eftirréttur ársins í gær fimmtudaginn 29. október og stóð frá kl. 9:00 – 15.30 á sýningunni Stóreldhús 2015. Að þessu sinni kepptu 40 einstaklingar úr matvælageiranum en um 60 manns settu inn þátttökubeiðni. Úrslit voru kynnt kl. 17:00 í gær.
Sigurvegari keppninnar var Axel Þorsteinsson yfirkonditor á Apótel Restaurant og hlaut að launum námskeið hjá Chocolate Academy Cacao Barry á erlendri grundu. Í öðru sæti lenti Denis Grbic matreiðslumaður á Grillinu Hótel Sögu og í þriðja sæti Iðunn Sigurðardóttir matreiðslunemi á Fiskfélaginu. Keppni var hörð og lítill munur á keppendum í efstu sætunum.

Sigurvegarar og dómarar frá vinstri: Ylfa Helgadóttir, Sturla Birgisson, Denis Grbic, Axel Þorsteinsson, Iðunn Sigurðardóttir, Karl Viggó Vigfússon
Dómarar að þessu sinni voru þau Karl Viggó Vigfússon Omnom sem jafnframt var yfirdómari, Sturla Birgisson Borg Restaurant og Ylfa Helgadóttir Kopar.
Að sögn Karls Viggós hefur keppnin vaxið ár frá ári og er gæðastaðallinn mjög hár. Keppendur leggja mikinn metnað í eftirréttina og var mjótt á munum milli efstu manna. Gaman er að sjá unga og efnilega fagmenn gefa allt í keppnina og greinilegt að áhugi á eftirréttagerð fer vaxandi.
Til gamans má geta að heildverslunin Garri hefur stofnað Instagram síðu þar sem hægt er að fylgjast með daglegum rekstri og ýmsum uppákomum hjá starfsmönnum fyrirtækisins.
Nokkrar myndir af Instagram síðu Garra:
Myndir: Garri heildverslun
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun19 klukkustundir síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanÍslenskur kokkur vekur athygli í Litháen
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanOmegn & Venner taka yfir SKÁL! við Njálsgötu
-
Keppni3 dagar síðanMikill skortur á fagmenntuðum framreiðslumönnum – fimm í námi við VMA
-
Markaðurinn19 klukkustundir síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Vín, drykkir og keppni21 klukkustund síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanMetnaðarfullur veitingastaður Róót opnar í Höfðatorgsturni
-
Markaðurinn3 dagar síðanGerðu verðsamanburð áður en þú kaupir






