Markaðurinn
Garri hlýtur hæstu einkunn í BRCGS gæðavottun
Garri hefur hlotið BRCGS Storage and Distribution gæðavottun með einkunnina AA, sem er hæsta mögulega einkunn í tilkynntu úttektarferli.
Vottunin staðfestir að starfsemi Garra uppfyllir strangar alþjóðlegar kröfur um matvælaöryggi, rekjanleika, hreinlæti og faglega stjórnun í allri meðhöndlun, geymslu og dreifingu vöru.
Vottunin styrkir stöðu Garra sem trausts samstarfsaðila á íslenskum markaði og endurspeglar metnað fyrirtækisins til að viðhalda framúrskarandi gæðastjórnun í allri starfsemi.
„Þetta er mikilvægur áfangi fyrir okkur. Viðurkenningin staðfestir að við höfum byggt upp öfluga ferla og vinnum stöðugt að því að tryggja gæði og öryggi í allri starfsemi okkar.
Við erum þakklát fyrir frábært starfsfólk og samstarfsaðila sem gera okkur kleift að viðhalda hæstu stöðlum í rekstri. Vottunin hvetur okkur til að halda áfram að gera vel og þróa og bæta þjónustu Garra enn frekar.“
Segir Finnur Gunnarsson, framkvæmdastjóri Garra.
-
Markaðurinn7 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn7 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn7 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Keppni3 dagar síðanNorræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta sinn
-
Keppni3 dagar síðanMargrét Gunnarsdóttir sigraði í Kornax-nemakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn4 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag





