Vín, drykkir og keppni
Starfsfólk veitingastaða boðið á BAR101 námskeið á Leynibarnum
Barþjónanámskeið verður haldið á Leynibarnum á Akureyri, við Hafnarstræti, fimmtudaginn 12. febrúar frá klukkan 19:30 til 22:00. Um er að ræða svokallað BAR101-námskeið sem ætlað er starfsfólki veitingastaða og er unnið í samstarfi við Barþjónaklúbb Íslands.
Farið verður yfir helstu grunnatriði barþjónustu, verklag og það sem skiptir máli í faglegri vinnu á bak við barborðið. Mekka Wines & Spirits stendur að námskeiðinu og mun Daníel Oddsson, fyrrverandi yfirbarþjónn á Jungle og núverandi starfsmaður fyrirtækisins, sitja fyrir svörum og veita innsýn í barsenuna í Reykjavík. Gestum gefst jafnframt kostur á að smakka úrval drykkja úr vörulínu Mekka Wines & Spirits.
Að kynningu lokinni verður efnt til hraðakeppni þar sem áhugasamir barþjónar keppa um að útbúa hinn klassíska Bacardi Daiquiri á sem skemmstum tíma. Sigurvegari kvöldsins fer ekki tómhentur heim.
Húsið opnar klukkan 19:30 með fordrykk og námskeiðið hefst klukkan 20:00. Áhugasamir geta skráð sig hér.
Aðstandendur vonast til að sjá sem flesta á Leynibarnum og eiga saman fræðandi og notalega kvöldstund.
-
Markaðurinn3 dagar síðanRekstur og húsnæði til sölu
-
Markaðurinn3 dagar síðanVilja spara fyrirtækjum tíma og kostnað
-
Frétt7 dagar síðanBrotist inn í vinsælt sælkerabakarí í Reykjavík
-
Frétt6 dagar síðanÁttu þessa kokteilsósu? Hún hefur verið innkölluð
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanFræðslunámskeið fyrir veitingafólk um framleiðslu, kokteilagerð og klaka
-
Frétt5 dagar síðanStærsti matarviðburður landsins fram undan í Hljómskálagarðinum
-
Starfsmannavelta2 dagar síðanSkúrinn í Stykkishólmi stefnir á lokun eftir 11 ára rekstur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun10 klukkustundir síðanNý bók fjallar um keppni þar sem Íslendingar hafa slegið í gegn



