Markaðurinn
Pizza með burrata og hráskinku
Burrata er auðvitað ein mesta snilld sem hefur verið fundin upp! Það má nota þennan ost í ýmislegt og hér höfum við dásamlega pizzu með fersku góðgæti ásamt rifnum burrata osti.
Þetta er skemmtileg tilbreyting frá hefðbundinni pizzu og við mælum sannarlega með því að þið prófið!
Fyrir 2-3 manns
- 1 kúla pizzadeig (skipt í tvennt)
- 4-6 msk. grænt pestó
- 6-8 sneiðar Heirloom tómatar
- 1 avókadó (niðurskorið)
- 2 lúkur klettasalat
- 4-6 sneiðar hráskinka
- 2 Burrata kúlur frá MS Gott í matinn
- Furuhnetur
- Basilika
- Salt + pipar
- Balsamic gljái
- Ólífuolía
Aðferð:
- Stillið ofninn á 225°C.
- Skiptið pizzadeiginu í tvo hluta. Ég keypti tilbúna kúlu í bakarí en þið getið að sjálfsögðu notað hvaða pizzadeig sem er. Teygið deigið til þar til það verður nokkurn vegin sporöskjulaga í laginu og reynið að hafa það í þynnri kantinum.
- Penslið með smá af ólífuolíu og bakið þar til þau gyllast og verða örlítið stökk á köntunum.
- Smyrjið með pestó og raðið síðan tómötum, avókadó, klettasalati og hráskinku á brauðin.
- Næst má taka Burrata ostinn í sundur og raða honum í litlum bitum hér og þar yfir brauðin.
- Að lokum má strá furuhnetum, saxaðri basiliku, salti, pipar og balsamik gljáa yfir allt saman!
-
Keppni6 dagar síðanAlþjóðlegt ævintýri hefst hjá Barþjónaklúbbi Íslands
-
Markaðurinn6 dagar síðanRabarbara trifle með stökku krönsi
-
Markaðurinn7 dagar síðanIðan fagnar 20 ára afmæli í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
-
Frétt7 dagar síðanInnihaldsupplýsingar vantar á Krónu pylsur
-
Markaðurinn21 klukkustund síðanVönduð JÖNI veltipanna til sölu
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanBig Mamma bætir enn einum staðnum við
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanDiageo fer fyrir dómstóla vegna rommbanns
-
Markaðurinn3 dagar síðanTax Free afsláttur af öllum vörum hjá Ásbirni



