Viðtöl, örfréttir & frumraun
Paul Cunningham opnar sig um heilsuna og lífið eftir aflimun

Paul Cunningham (fyrir miðju með gleraugu) ásamt starfsfólki Grillsins á Hótel Sögu þegar hann var gestakokkur á matarhátíðinni Food & Fun árið 2015. Paul Cunningham hefur margsinnis heimsótt Ísland og er vel þekktur meðal fagfólks í íslenskum veitingageira.
Mynd: Bragi Þór Hansson / Veitingageirinn.is
Breski stjörnukokkurinn Paul Cunningham, einn þekktasti matreiðslumaður Danmerkur og margfaldur Michelin-kokkur, hefur misst annan fót sinn eftir langvarandi heilsuvanda sem tengist sykursýki. Í viðtali við danska miðilinn Ekstra Bladet segir hinn 56 ára gamli Paul Cunningham að áratugalangt álag, streita og óheilbrigður lífsstíll hafi tekið sinn toll.
Margir íslenskir fagmenn í veitingageiranum þekkja vel til Paul Cunningham, sem hefur margsinnis heimsótt Ísland á ferli sínum og tekið þátt í ýmsum matartengdum viðburðum og verkefnum.
Paul Cunningham hefur um árabil verið í fremstu röð danskrar matargerðar og stýrt þekktum veitingastöðum á borð við Søllerød Kro, The Paul og Henne Kirkeby Kro.
Á ferlinum hefur hann hlotið fjölda Michelin-stjarna, gefið út átta matreiðslubækur og skipað sér í hóp virtustu matreiðslumanna Norðurlanda.
„Ég hef aldrei hugsað nægilega vel um sjálfan mig,“
segir Paul Cunningham í viðtalinu. Hann greindist með sykursýki fyrir um aldarfjórðungi og viðurkennir að álag, hár blóðþrýstingur, lítil hreyfing og ofgnótt góðra veitinga hafi haft alvarleg áhrif á heilsu hans.
Á undanförnum árum hefur hann misst sjón á hægra auga, gengist undir nýrnaígræðslu og nú síðast þurft að sæta aflimun á fæti. Aðdragandinn var sýking sem kom upp eftir að glerbrot fór í fót hans. Sárið greri ekki sem skyldi og sýkingin breiddist út.
„Að lokum náðu læknarnir ekki að bjarga fætinum og því þurfti að taka hann af fyrir neðan hné,“
segir Paul Cunningham. Aðgerðin fór fram í mars síðastliðnum.
Þrátt fyrir erfiða reynslu segist hann ekki ætla að festast í fortíðinni. Í dag ver hann tíma sínum meðal annars í myndlist, málar og teiknar, og verk hans eru jafnvel farin að rata inn í gallerí.
„Það þýðir ekkert annað en að horfa fram á veginn og halda áfram að æfa sig.“

Paul Cunningham árið 2014 þegar hann var gestakokkur á Grillinu á Hótel Sögu í tengslum við Food & Fun hátíðina. Þetta var annað árið í röð sem hinn vinsæli Michelin-kokkur tók þátt í hátíðinni á Íslandi.
Mynd; Matthías Þórarinsson / Veitingageirinn.is
Ferill Paul Cunningham í Danmörku hófst árið 1994 þegar hann flutti frá Essex á Englandi eftir að hafa kynnst danskri eiginkonu sinni. Hann hóf störf hjá Søllerød Kro og varð síðar yfirkokkur staðarins. Þar hlaut hann sína fyrstu Michelin-stjörnu árið 1996.
Síðar stýrði hann meðal annars veitingastaðnum The Paul í Tívolí í Kaupmannahöfn, sem einnig hlaut Michelin-stjörnu undir hans stjórn. Árið 2012 tók hann við eldhúsinu á Henne Kirkeby Kro í Vestur-Jótlandi, þar sem honum tókst að afla staðnum tveggja Michelin-stjarna sem veitingastaðurinn hefur haldið síðan árið 2017.

F.v. Paul Cunningham, Francis Cardenau, Mhairi Galloway og Anton Emil Nielsen.
Paul Cunningham var einn af dómurum í Deaf Chef keppninni árið 2015, þar sem Unnur Pétursdóttir matreiðslumaður keppti fyrir Íslands hönd.
Mynd: Kolbrún Völkudóttir
Margir muna einnig eftir Paul Cunningham utan veitingahúsanna. Árið 2021 vakti hann mikla athygli þegar hann varð fyrsti Michelin-kokkurinn til að þróa sérstakan hamborgara fyrir McDonald’s í Danmörku. Bearnaise-hamborgari hans reyndist afar vinsæll og seldist í miklu magni.
Þrátt fyrir að starfsferli hans sem yfirkokks sé nú lokið segir Paul Cunningham að ástríðan fyrir matargerðinni sé enn sú sama.
„Ef ég væri enn með fótinn minn væri ég líklega enn að vinna myrkranna á milli. Ég er háður matargerðinni og get einfaldlega ekki hætt.“
segir hann að lokum.
Það eru ófáar fréttirnar sem birst hafa hér á Veitingageirinn.is af Íslandsvininum Paul Cunningham í gegnum árin. Hægt er að lesa þær með því að smella hér.
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanAtli Snær og Einar Örn opna Chikin á Akureyri
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanNýtt bakarí opnað á Húsavík eftir nokkurra ára hlé
-
Frétt3 dagar síðanBrotist inn í vinsælt sælkerabakarí í Reykjavík
-
Frétt3 dagar síðanÁttu þessa kokteilsósu? Hún hefur verið innkölluð
-
Markaðurinn6 dagar síðanGarri stækkar vöruúrval sitt fyrir veitingageirann
-
Markaðurinn6 dagar síðanÍsey fagnar væntanlegum sólmyrkva með nýju skyrbragði
-
Frétt2 dagar síðanStærsti matarviðburður landsins fram undan í Hljómskálagarðinum
-
Frétt5 dagar síðanÁttu þessa grillpönnu? Þá skaltu hætta að nota hana strax


