13aprAllan daginn19Reykjavík Cocktail Week 2026 fer fram 13. til 19. aprílEftir
Stærsta kokteilahátíð Íslands, Reykjavík Cocktail Week fer fram dagana 13. – 19. apríl 2026! Fréttayfirlit hér.
Stærsta kokteilahátíð Íslands, Reykjavík Cocktail Week fer fram dagana 13. – 19. apríl 2026!
13.04.2026 - 19.04.2026 (Allan daginn)(GMT+00:00)
16aprAllan daginn18Norræna nemakeppninEftir
Norræna nemakeppnin fer fram dagana 16. til 18. apríl í Grythyttan í Svíþjóð, þar sem efnilegir nemar í matreiðslu og framreiðslu frá Norðurlöndunum koma saman til að etja kappi. Keppnin var
Norræna nemakeppnin fer fram dagana 16. til 18. apríl í Grythyttan í Svíþjóð, þar sem efnilegir nemar í matreiðslu og framreiðslu frá Norðurlöndunum koma saman til að etja kappi.
Keppnin var fyrst haldin árið 1981 og hefur síðan skipað sér fastan sess sem mikilvægur vettvangur fyrir unga fagmenn í greininni. Þar gefst þátttakendum tækifæri til að sýna færni sína, læra hver af öðrum og mynda tengsl yfir landamæri.
Keppnin er haldin til skiptis milli Norðurlandanna af samtökum í greininni, í nánu samstarfi við hótel- og matvælaskóla. Með því er lögð áhersla á bæði faglega hæfni og menntun, sem gegna lykilhlutverki í framtíð veitingageirans.
Meira
16.04.2026 - 18.04.2026 (Allan daginn)(GMT+00:00)
18apr19:0023:00Stórskotalið íslenskra Bocuse d’Or kokka sameinast á styrktarkvöldiEftir
Styrktarkvöldverður verður haldinn til heiðurs og stuðnings við Snædísi Xyzu Jónsdóttur, sem á dögunum tryggði sér sæti í úrslitum Bocuse d’Or, sem fram fara í janúar 2027 í Lyon í
Styrktarkvöldverður verður haldinn til heiðurs og stuðnings við Snædísi Xyzu Jónsdóttur, sem á dögunum tryggði sér sæti í úrslitum Bocuse d’Or, sem fram fara í janúar 2027 í Lyon í Frakklandi. Um er að ræða eitt stærsta verkefni íslenskrar matreiðslu á alþjóðavettvangi og undirbúningur þegar hafinn af fullum krafti.
Kvöldverðurinn fer fram á veitingastaðnum EIRIKSDÓTTIR laugardaginn 18. apríl næstkomandi og er liður í fjáröflun fyrir Snædísi og teymi hennar, sem keppir fyrir hönd Íslands í þessari virtu heimsmeistarakeppni einstaklinga í matreiðslu.
Meira
18.04.2026 19:00 - 23:00(GMT+00:00)
28aprAllan daginn29Ferð til Ítalíu í verðlaun í pizzakeppniEftir
Áhugasamir pizzabakarar fá tækifæri til að láta ljós sitt skína síðar í vor þegar pizzakeppni verður haldin dagana 28. og 29. apríl 2026 í tilraunaeldhúsi ÓJK-ÍSAM. Keppnin er haldin í
Áhugasamir pizzabakarar fá tækifæri til að láta ljós sitt skína síðar í vor þegar pizzakeppni verður haldin dagana 28. og 29. apríl 2026 í tilraunaeldhúsi ÓJK-ÍSAM. Keppnin er haldin í samstarfi við ítalska hveitiframleiðandann Polselli og verður keppt um vegleg verðlaun.
Fyrstu verðlaun eru sérlega eftirsóknarverð. Sigurvegarinn fær ferð til Ítalíu þar sem hann sækir námskeið hjá Polselli og fær jafnframt tækifæri til að heimsækja frægustu pizzastaði í Napólí. Auk þess verða veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í keppninni.
Keppnin byggir á skýrum reglum. Keppendur þurfa að nota Polselli hveiti við pizzugerðina og koma sjálfir með deigið og allt hráefni sem notað er á pizzuna, ásamt uppskrift. Hver keppandi fær 15 til 20 mínútur til að baka pizzuna. Að því loknu smakka dómarar pizzurnar og gefa þeim einkunn.
Áhugasamir geta fengið frekari upplýsingar um skráningu og reglur hjá Eggerti hjá ÓJK-ÍSAM. Hægt er að hafa samband í síma 856-2762 eða með tölvupósti á [email protected].
Meira
28.04.2026 - 29.04.2026 (Allan daginn)(GMT+00:00)
03mai12:0018:00Reykjavík Chilli Festival í Gamla bíóEftir
Ný matarhátíð sem helguð er eldpipar og bragðsterkum mat verður haldin í fyrsta sinn í Reykjavík sunnudaginn 3. maí næstkomandi. Hátíðin ber heitið Reykjavík Chilli Festival og fer fram í
Ný matarhátíð sem helguð er eldpipar og bragðsterkum mat verður haldin í fyrsta sinn í Reykjavík sunnudaginn 3. maí næstkomandi. Hátíðin ber heitið Reykjavík Chilli Festival og fer fram í Gamla bíó milli klukkan 12:00 og 18:00.
03.05.2026 12:00 - 18:00(GMT+00:00)
16maiAllan daginn19Hinrik Örn Lárusson keppir fyrir Íslands hönd í WalesEftir
16.05.2026 - 19.05.2026 (Allan daginn)(GMT+00:00)
16maiAllan daginn19Worldchefs með ráðstefnu, sýningu og keppni í Wales árið 2026Eftir
Worldchefs, áhrifamestu samtök matreiðslumanna í heiminum, verða með ráðstefnu, sýningu og keppni sem fram fer dagana 16.–19. maí 2026 í Newport í Wales. Þema ráðstefnunnar að þessu sinni er „Pasture, Passion,
Worldchefs, áhrifamestu samtök matreiðslumanna í heiminum, verða með ráðstefnu, sýningu og keppni sem fram fer dagana 16.–19. maí 2026 í Newport í Wales.
Þema ráðstefnunnar að þessu sinni er „Pasture, Passion, Plate“, sem heiðrar ferðalag matarins frá uppruna til fullbúins réttar og undirstrikar hvernig matur tengir okkur öll – frá bónda til borðs, yfir landamæri og menningarheima.
Um 1.000 kokkar frá 110 löndum sækja ráðstefnuna, ásamt 30 alþjóðlegum fyrirlesurum og sérfræðingum úr atvinnulífinu. Þá verður jafnframt sýning 200 nýsköpunarfyrirtækja og sýnenda, og búist er við að viðburðurinn laði að um 6.000 þátttakendur víðs vegar að úr heiminum.
Global Chef keppnin fer fram samhliða ráðstefnunni, en þar mun Hinrik Örn Lárusson keppir fyrir Íslands hönd í Wales.
Heimasíða: www.worldchefscongress.org
Kynningarmyndband
Meira
16.05.2026 - 19.05.2026 (Allan daginn)(GMT+00:00)
30mai(mai 30)12:0031(mai 31)21:00Ný BBQ hátíð boðar til matarveislu við KolaportiðEftir
RVK BBQ Festival fer fram við Kolaportið dagana 30. og 31. maí, en um er að ræða fyrstu sérhæfðu BBQ matarhátíð sinnar tegundar á Íslandi. Hátíðin sækir innblástur til viðburða á
RVK BBQ Festival fer fram við Kolaportið dagana 30. og 31. maí, en um er að ræða fyrstu sérhæfðu BBQ matarhátíð sinnar tegundar á Íslandi.
Hátíðin sækir innblástur til viðburða á borð við Meatopia í London og stórra BBQ-hátíða í Bandaríkjunum, en lögð er áhersla á íslenskt hráefni og nálgun.
Hátíðin verður haldin bæði utandyra og innandyra. Á útisvæðinu norðan Kolaportsins munu bestu grillarar landsins taka til hendinni, á meðan inni verður veitingasvæði, BBQ-matarmarkaður og keppt um titilinn Grillmeistari Íslands 2026.
Opnunartímar eru laugardaginn 30. maí frá klukkan 12:00 til 21:00 og sunnudaginn 31. maí frá klukkan 12:00 til 18:00.
Viðburðurinn er opinn öllum og er ætlað að höfða jafnt til fjölskyldna sem BBQ-áhugafólks og þeirra sem vilja einfaldlega njóta góðs matar og stemningar við sjávarsíðuna.
Meira
30.05.2026 12:00 - 31.05.2026 21:00(GMT+00:00)
Atvinnu-, og sölusíða veitingabransans
Starfsfólk í veitingabransanum
Veitingageirinn (Lokuð grúppa, aðeins fyrir fagmenn í veitingabransanum)
Ertu ekki að fá inngöngu en uppfyllir öll skilyrði? Sendu þá á okkur línu til staðfestingar.
