Frétt
Kóríanderfræ innkölluð eftir að hættulegt efni greindist
Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af TRS kóriander fræjum sem Fiska/Lagsmaður flytur inn, en varan greindist með leifar af ólöglegu varnarefninu chorpyrifos. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes ( HEF).
Tilkynningin kom til Íslands í gegnum evrópska viðvörunarkerfið RASFF sem er tilkynningakerfi um hættuleg matvæli og fóður á markaði.
Eingöngu er verið að innkalla eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: TRS
- Vöruheiti: TRS dhania whole 100g (coriander seeds)
- Innflytjandi: Lagsmaður ehf. / Fiska.is
- Best fyrir 31.8.2027
- Framleiðsluland: Indland
- Framleiðandi: TRS Head Office, Southbridge Way, The Green, Southall, Middlesex UB2 4AX UK
- Geymsluskilyrði: Á þurrum stað
- Dreifing: Verslun Fiska.is, Nýbýlavegi 6, 200 Kópavogur
Neytendur skulu ekki neyta vörunnar heldur farga henni eða skila til verslunarinnar til að fá endurgreitt.
Mynd: mast.is
-
Keppni7 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Frétt5 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Markaðurinn6 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Keppni4 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni2 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn21 klukkustund síðanLíður að jólum
-
Pistlar17 klukkustundir síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð




