Vín, drykkir og keppni
Nýr bjór þróaður með íslensku pylsuna í huga

F.v. Einar Örn Sigurdórsson framkvæmdastjóri RVK Bruggfélags og Hafþór Úlfarsson deildarstjóri Markaðsdeildar hjá SS
Reykjavík Brewing Company hefur kynnt til sögunnar nýjan bjór sem þróaður er með einn þekktasta rétt Íslendinga í huga. Um er að ræða svonefndan Lite Pylsubjór sem fyrirtækið hefur unnið að í samstarfi við SS, en bjórinn er sérstaklega hannaður til að para við íslenska pylsu.
Í tilkynningu frá brugghúsinu kemur fram að markmiðið hafi verið að skapa léttan og aðgengilegan lagerbjór sem styður við bragð pylsunnar fremur en að yfirgnæfa það. Niðurstaðan er 4,4 prósenta vínarlager sem er glúteinlaus, tær og léttur í munni, með fersku yfirbragði og hreinu eftirbragði.
„Íslenska pylsan hefur lengi skipað sérstakan sess í hjörtum þjóðarinnar og við erum afskaplega montin af því að vinna með þessu þjóðþekkta vörumerki og skapa eitthvað nýtt og skemmtilegt,“
segir meðal annars í tilkynningunni.
Að sögn framleiðenda er bjórinn hugsaður sem eðlilegur fylgifiskur klassískrar pylsu, þar sem ferskleiki og léttleiki spila lykilhlutverk. Með því fái slagorðið „ein með öllu“ nýja merkingu.
Lite Pylsubjórinn er væntanlegur á markað í byrjun sumars.
Myndir: aðsendar
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn2 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn4 dagar síðanLíður að jólum
-
Markaðurinn2 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Pistlar4 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Markaðurinn2 dagar síðanHrekkjavöku kökur




