Markaðurinn
Sólmyrkvapylsur frá SS í takmörkuðu upplagi
Í tilefni sólmyrkvans 12. ágúst kynnir SS til leiks einstaka nýjung: Sólmyrkvapylsur, sérstaklega gerðar til að njóta á meðan sólmyrkvinn gengur yfir.
Sólmyrkvapylsurnar eru svartar að lit, litaðar með smokkfiskbleki, og kryddaðar með chili, lauk, pipar og hvítlauk. Útkoman er bragðgóð og öðruvísi pylsa sem passar vel við þennan einstaka viðburð.
Pylsurnar verða framleiddar í mjög takmörkuðu upplagi og því um að gera að grípa þær á meðan þær fást.
Sólmyrkvapylsurnar eru hluti af Nýjung meistarans frá SS. Undir merkjum Nýjung meistarans koma reglulega nýjar og spennandi pylsur, þar sem pylsuunnendum gefst tækifæri til að prófa ólíkar bragðsamsetningar og nýjungar.
Sólmyrkvapylsurnar verða fáanlegar í Bónus, Krónunni, Hagkaupum og víðar, á meðan birgðir endast.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn3 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn3 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn3 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Nemendur & nemakeppni6 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn3 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn6 dagar síðanLíður að jólum




