Frétt
Mest lesnu fréttir ársins 2017 á veitingageirinn.is
Eftirfarandi listi sýnir tuttugu vinsælustu fréttirnar á árinu 2017. Að meðaltali eru um 55 þúsund manns sem heimsækja veitingageirinn.is í hverjum mánuði.
Fréttir ársins á veitingageirinn.is eru fjölbreyttar og til gamans má geta þess að tveir aðsendir pistlar eru í tveimur efstu sætunum eftir Hilmar B. Jónsson matreiðslumeistara.
Þvílík óvirðing fyrir iðnaðarmönnum þessa lands
Stundum getur maður ekki orða bundist. Hér koma upp hvert málið á fætur öðru þar, sem “Hið Háa“ Alþingi samþykkir lög með öllum greiddum atkvæðum sem maður gæti haldið að þetta fólk hafi ekki einu sinni lesið, hvað þá heldur skoðað hvað þau voru að skrifa undir. Lesa meira. | Fleiri fréttir um iðnaðarmálið hér.
Mikil vonbrigði með “Matarmarkaðinn” á Hlemmi
Gerði mér ferð á Hlemm í gær til að versla á „Matarmarkaðnum“ sem borgin sagði að yrði í gamla strætó skýlinu. Var að hugsa um að kaupa kannski osta og áleggspylsur. Að sjálfsögðu var smá mál að finna bílastæði en fannst að lokum. Lesa meira. | Fleiri fréttir um Mathöllina hér.
Svona lítur matseðillinn hjá Costco veisluþjónustunni út
Costco býður upp á fjölbreyttann matseðil fyrir þá sem eru í veisluhugleiðingum, t.a.m. veislubakka með samlokum og vefjum, ítalska forrétti, sushibakka, eftirrétta-, og ávaxtabakka að auki mikið úrval af kökum, skreyttar þá sérstaklega fyrir þitt afmæli svo fátt eitt sé nefnt. Lesa meira. | Fleiri fréttir um Costco hér.
Nýi veitingastaðurinn á Laugaveginum mun bera nafnið Sumac – Myndir frá framkvæmdum
Nýi veitingastaðurinn, sem að Þráinn Freyr Vigfússon matreiðslumaður er á meðal eigenda, mun bera nafnið Sumac Grill + drinks. Staðurinn er staðsettur við Laugaveg 28 og í sama húsi er verið að reisa glæsilegt ION-Hótel. Lesa meira. | Fleiri fréttir um Sumac hér.
Þessir íslensku veitingastaðir eru á nýjasta Norræna veitingastaðalistanum
Nú rétt í þessu var tilkynnt hvaða veitingastaðir eru á White Guide Nordic listanum sem út kemur 26. júní næstkomandi. Lesa meira. | Fleiri fréttir um veitingastaðalistann hér.
MAT BAR er nýr veitingastaður á Hverfisgötu
MAT BAR er hugarfóstur Guðjón Haukssonar athafnamanns, hann hefur leitt verkefnið af mikilli hugsjón og skapað þennan stað sem er nú að opna í fallegu húsnæði við Hverfisgötu 26. Lesa meira. | Fleiri fréttir um Mat Bar hér.
Matstöðin opnar í Kópavogi
Langt úti á Kársnesinu stendur lítill „skúr“ eða sjoppa sem hefur staðið þarna svo lengi sem elstu menn muna og er eitt af upprunalegu húsum Vesturbæjar Kópavogs. Þessi sjoppa lætur ekki mikið yfir sér þó að hún hafi þjónað nokkrum kynslóðum og borið nokkur nöfn. Sum voru að sjálfsögðu fínni en önnur, en fyrir okkur frumbyggja Kópavogsins er þetta bara „Sigga Sjoppa“. Opinberlega var það Biðskýlið Kársnesi. Lesa meira. Fleiri fréttir um Matstöðina hér.
Ölverk Pizza & Brugghús opnar í Hveragerði
Ölverk Pizza & Brugghús opnar núna í maí í hjarta Hveragerðis en veitingastaðurinn er staðsettur við Breiðumörk 2 og hinu megin við hornið í sama húsi og Ölverk, er að finna Álnavörubúðina sem að svo margir kannast við. Ölverk mun sérhæfa sig í eldbökuðum pizzum og sérbrugguðum bjór. Lesa meira. | Fleiri fréttir um Ölverk hér.
Gordon Ramsay opnar veitingastað á Íslandi – (1. aprílgabb)
Stjörnukokkurinn Gordon Ramsay er staddur hér á Íslandi og er í óða önn að undirbúa opnun á nýjum veitingastað á Laugavegi 59 á annarri hæð. Lesa meira. Fleiri fréttir um Nostra hér.
O’Learys til Íslands | Opnar í Smáralindinni
O’Learys veitingahúsakeðjan opnar á Íslandi í fyrsta sinn og verður staðsett í Smáralindinni. Stofnandi O’Learys Jonas Reinholdsson opnaði fyrsta O’Learys veitingastaðinn árið 1988 í Gautaborg í Svíþjóð. Í dag eru yfir 140 staðir víða um heim og um 3 milljónir manna borða ár hvert á O’Learys veitingastöðum og er mest vaxandi veitingahúsakeðja í heimi. Lesa meira. | Fleiri fréttir um O’Learys hér.
Bein útsending – Bocuse d´Or
Bein útsending verður frá Bocuse d´Or í Lyon í Frakklandi þar sem Viktor Örn Andrésson keppir fyrir Íslands hönd. Beina útsendingin verður dagana 24. og 25. janúar 2017 og hefst hún klukkan 08:00 báða dagana og verðlaunaafhendingin er 25. janúar klukkan 17:00 á íslenskum tíma. Lesa meira. | Fleiri fréttir um Viktor hér og Bocuse d´Or hér.
Hvaða 5 keppendur keppa til úrslita um titilinn Kokkur ársins 2017?
Þessir 12 matreiðslumenn eru komnir í undanúrslit í keppninni Kokkur ársins 2017. Lesa meira. | Fleiri fréttir um keppnina Kokkur ársins hér.
Gastro Truck nýtur vinsælda í einkaveislum
Matarbíllinn Gastro Truck er nýkomin á götuna þar sem “Crispy Spicy” kjúklingaborgarar, þorskhnakki í sætkartöfluvefju með pikkluðum rauðrófuteningum og jógúrt remúlaði, hægeldaðar nautakinnar í brauði með hrásalati svo fátt eitt sé nefnt. Lesa meira. | Fleiri fréttir um Gastro Truck hér.
Þrír Íslenskir kokkar opna Le KocK
Nýjasta viðbótin í röð kaupmanna á Hlemmi er Le KocK, en þeir sem standa á bak við Le KocK eru kokkarnir Karl Óskar Smárason, Knútur Hreiðarsson og Markús Ingi Guðnason. Lesa meira. | Fleiri fréttir um Le KocK hér.
Nýtt Fine Dining veitingahús í miðbæ Reykjavíkur
Nostra er metnaðarfullt veitingahús sem mun opna í byrjun júní að Laugavegi 59 og leitum við að góðum viðbótum við okkar ört stækkandi fjölskyldu. Lesa meira. | Fleiri fréttir um Nostra hér.
Le kock strákarnir opna veitingastað í Ármúla
Le KocK er nýjasta viðbót í veitingaflóru Reykjavíkur. Í byrjun stóð til að opna matarvagn undir merkjum Le KocK sem átti fyrst um sinn vera staðsettur í Reykjavík, vera með PopUp stað í Mathöllinni á Hlemmi og síðar ferðast um landið, en nú er breyting á. Lesa meira. Fleiri fréttir um Le KocK hér.
Eftirlitsmenn frá Michelin ánægðir með Íslenska veitingastaði – 5 veitingastaðir fá viðurkenningu
Eins og kunnugt er þá hlaut veitingastaðurinn DILL Michelin stjörnu og er hann fyrsti íslenski veitingastaðurinn til að hljóta Michelin stjörnu. Verðlaunin voru afhent í Stokkhólmi í morgun vegna nýútkomnum Michelin guide 2017 og að auki fengu fjögur önnur íslensk veitingahús viðurkenningu. Lesa meira. | Fleiri Michelin fréttir hér.
Falinn fjársjóður í Skaftafelli
Hér um daginn var ég á ferð um Suðurlandið sem er svo sem ekki í frásögu færandi. Ég hafði ekki farið austur lengi eða ekki eftir að ferðamannaflóðið mikla skall á, þannig að ég var spenntur og forvitinn að sjá breytingarnar. Eins og alþjóð veit þá hafa sprottið upp fjöldi veitingastaða við þjóðveginn og eðli málsins samkvæmt nokkuð misjafnir af gæðum en ég ætla ekki að að dæma um þá hér. Lesa meira. | Fleiri fréttir um Glacier Goodies hér.
Friðgeir hættir á Holtinu og opnar nýjan veitingastað á nýju ári
Friðgeir Ingi Eiríksson yfirmatreiðslumaður á Gallery Restaurant á Hótel Holti hefur ákveðið að hætta um áramótin næstkomandi og opna nýjan veitingastað Brasserie Eiriksson á nýju ári. Friðgeir hefur starfað á Holtinu frá árinu 1997 með stuttu hléi (byrjaði sem matreiðslunemi) eða fimm ár á meðan hann var í Frakklandi. Lesa meira. | Fleiri fréttir um Brasserie Eiriksson hér.
Bocuse d´Or: Ísland á verðlaunapall
Veitingageirinn.is óskar ykkur öllum árs, friðar og farsældar á komandi ári og þökkum frábæra samveru á árinu sem er að líða og hlökkum til að takast á við ný verkefni á árinu 2018.
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðan
Iðunn Mathöll á Akureyri opnar í dag
-
Frétt4 dagar síðan
34 veitingastaðir birtu matseðil og annað kynningarefni bara á ensku
-
Frétt20 klukkustundir síðan
Atvinnurekanda skylt að greiða matreiðslumanni 1,4 milljónir króna vegna vangreiddra launa
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Wolt “wrapped” samantektin – Það sem Íslendingar pöntuðu á árinu 2024
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Kalkúnaveisla með öllu tilheyrandi
-
Markaðurinn5 dagar síðan
Uppskrift – Fylltar kjúklingabringur með eplum, Dala höfðingja og rósmarín-hlynsírópsgljáa
-
Frétt3 dagar síðan
Innköllun á sviðasultu frá Kjarnafæði
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Fallegur og girnilegur jólakrans bar sigur úr býtum