Keppni
Ísland átti öfluga fulltrúa á fyrstu Green Chef International keppninni
Fyrsta alþjóðlega Green Chef keppnin fór fram 22. og 23. mars í Herning í Danmörku, þar sem keppnin var haldin í glæsilegri aðstöðu í Messe Center Herning. Um er að ræða tímamótaviðburð, en keppnin á rætur sínar að rekja til Nordic Green Chef sem nú hefur þróast yfir í alþjóðlega keppni og markar þannig nýtt skref í átt að aukinni áherslu á sjálfbærni og græna matargerð á heimsvísu.
Frá Nordic yfir í alþjóðlega keppni
Keppendur komu frá sjö þjóðum og var samkeppnin hörð, þar sem lögð var rík áhersla á nýsköpun, sjálfbær hráefni og fagmennsku í hæsta gæðaflokki. Að lokum stóð danska liðið uppi sem sigurvegari, Noregur hafnaði í öðru sæti og Lúxemborg tryggði sér þriðja sætið.
Danir standa uppi sem sigurvegarar
Í sigursveit Dana voru þeir Bjarke Jeppesen og Magnus Lund. Í liði Noregs kepptu þeir Aleksander Stand og Felix Stand, og fyrir Lúxemborg þeir Thomas Murer og Victor Thill. Ísland átti tvo öfluga fulltrúa í keppninni, þá Andrés Björgvinsson og Þorlák Sigurðsson, sem stóðu sig með mikilli prýði og vöktu athygli fyrir fagmennsku, hugmyndaauðgi og metnað í sinni framsetningu.
Glæsileg framkvæmd vekur athygli
Keppnin fór afar vel fram í alla staði og var skipulag til fyrirmyndar. Dönsku kokkasamtökin eiga mikið lof skilið fyrir faglega framkvæmd og glæsilegt utanumhald, sem tryggði að keppnin stæði undir væntingum sem alþjóðlegur viðburður. Ljóst er að Green Chef keppnin hefur fest sig í sessi sem mikilvægur vettvangur fyrir kokka sem vilja leggja sitt af mörkum til sjálfbærari framtíðar í matargerð.
Myndir: Mummi Lú
-
Keppni5 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn4 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Keppni5 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Markaðurinn4 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni3 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Frétt6 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Nemendur & nemakeppni7 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð















