Bocuse d´Or
Bein útsending frá Marseille þar sem Snædís keppir fyrir Íslands hönd

Jet Loos, kandídat Hollands, rétt áður en hún hóf keppni á fyrsta degi Bocuse d’Or Europe 2026 í Marseille í morgun.
Keppnin Bocuse d’Or Europe 2026 hófst í morgun í Marseille í Frakklandi þar sem fremstu kokkar Evrópu etja kappi um sæti í úrslitum Bocuse d’Or 2027. Íslenska liðið er undir stjórn Snædísar Xyza Mae Jónsdóttur sem er kandídat Íslands í keppninni og stígur hún á svið á morgun, mánudaginn 16. mars.
Undirbúningur hófst snemma í morgun. Fyrstu keppendur mættu til að stilla upp vinnusvæðum sínum klukkan 4.45 að íslenskum tíma og spennan var strax farin að magnast í keppnishöllinni.
Keppni dagsins hófst klukkan 7.30 að íslenskum tíma þegar lið Hollands hóf leik. Stuttu síðar fylgdu Finnar, Eistar og Lettar í kjölfarið og síðan lið Ungverjalands, Svíþjóð og Frakkland. Tékkland, Belgía og Noregur klára síðan keppnisröð dagsins.
Á dagskrá dagsins eru tvö meginverkefni sem keppendur þurfa að leysa af hendi af mikilli nákvæmni. Annars vegar er svokallað „On Stage“ þema sem hófst klukkan 9.45 að íslenskum tíma. Hins vegar Miðjarðarhafsþemað sem hefst klukkan 12.25.
Í Miðjarðarhafsverkefninu þurfa keppendur að útbúa fjórtán diska þar sem fjögur hráefni eru í aðalhlutverki. Það eru smokkfiskur, nautalund af Camargue-nauti, hvítlaukur og ólífuolía. Í hinu verkefninu, sem borið er fram á stóru fati, þurfa keppendur að útbúa fjórtán skammta þar sem rauður gurnard-fiskur, litlar fjólubláar ætiþistlar, kjúklingabaunir og ígulker eru lykilhráefni.
Fyrsti rétturinn á fatinu er lagður fyrir dómara klukkan 13.00 að íslenskum tíma og keppni dagsins lýkur klukkan 16.00. Að því loknu verður tekin opinber hópmynd af keppendum og teyminu klukkan 17.00.
Snædís mætir til leiks á morgun
Á morgun, 16. mars, verður komið að Íslandi þegar Snædís Xyza Mae Jónsdóttir leiðir íslenska liðið í keppninni. Miklar vonir eru bundnar við framlag hennar og teymisins sem hefur undirbúið sig af mikilli fagmennsku undanfarna mánuði.
Veitingageirinn.is fylgist grannt með gangi mála í Marseille og flytur lesendum fréttir af íslenska liðinu og því helsta sem gerist í þessari virtustu matreiðslukeppni Evrópu.
Fylgstu með keppninni í beinni útsendingu og upplifðu stemninguna frá Marseille.
Kynningarmyndband Snædísar komið í loftið
Það er fastur liður í aðdraganda Bocuse d’Or að hver kandídat gefi út stutt kynningarmyndband rétt áður en keppni hefst. Hér að neðan má sjá kynningarmyndband frá Snædísi Xyza Mae Jónsdóttur sem leiðir íslenska liðið í keppninni.
Mynd: bocusedor.com
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanObo diner opnar brátt á Egilsstöðum með nýju yfirbragði
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel22 klukkustundir síðanReynsluboltar úr veitingageiranum opna kokteilbar á Hverfisgötu
-
Markaðurinn6 dagar síðanRekstraraðili óskast fyrir veitingarekstur í Edinborgarhúsinu
-
Starfsmannavelta5 dagar síðanReksturinn náði ekki nægri veltu
-
Starfsmannavelta4 dagar síðanSt Leonard’s lokar eftir fimm ára rekstur
-
Markaðurinn6 dagar síðanGazpacho súpa sem svalar á heitum sumardögum
-
Markaðurinn23 klukkustundir síðanKúmenosturinn er kominn aftur og færir íslenskri matarhefð nýtt líf
-
Frétt7 dagar síðanKaup Dranga á Brauð & Co. undirrituð



