Frétt
Ný stjórn SVEIT tekin við eftir vel sóttan aðalfund

Vel sóttur aðalfundur SVEIT fór fram á Sjálandi í Garðabæ þar sem málefni veitingageirans voru til umræðu
Aðalfundur Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT) fór fram í gær á Sjálandi í Garðabæ við góðar aðstæður og var fundurinn vel sóttur. Fram fóru góðar og málefnalegar umræður um starf samtakanna, stefnu þeirra og helstu áherslumál fram undan.
Á fundinum létu Skúli Sigfússon og Birgir Örn Birgisson af störfum sem stjórnarmenn. Samtökin þakka þeim óeigingjarnt og mikilvægt starf í þágu samtakanna á undanförnum árum. Það er ekki sjálfgefið að rekstraraðilar í veitingageiranum, sem sinna krefjandi daglegum rekstri, gefi sér tíma til hagsmunastarfs fyrir greinina án endurgjalds og er framlag þeirra því sérstaklega þakkarvert, að því er fram kemur í tilkynningu frá samtökunum.
Nýir stjórnarmenn voru kjörnir þau María Hjaltadóttir frá Finnsson, Arngrímur Haraldsson frá Funky Bhangra og Brynjar Guðjónsson frá Flatey. Samtökin fagna því að öflugt og reynslumikið fólk úr greininni taki sæti í stjórn og taki þátt í að móta stefnu og framtíð samtakanna.
Áfram í stjórn sitja Arinbjörn Þórarinsson frá Greifanum og Emil Helgi Lárusson frá Serrano. Björn Árnason verður varamaður í stjórn.
Fyrsti stjórnarfundur nýrrar stjórnar verður haldinn eftir páska, þar sem nýr stjórnarformaður verður kjörinn.
Einar Bárðarson tók við sem framkvæmdastjóri samtakana í júní á síðasta ári og hefur látið til sín taka í fjölmörgum baráttumálum tengdum veitingageiranum.
Myndir: aðsendar
-
Markaðurinn4 dagar síðanVönduð JÖNI veltipanna til sölu
-
Markaðurinn6 dagar síðanTax Free afsláttur af öllum vörum hjá Ásbirni
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel7 dagar síðanBig Mamma bætir enn einum staðnum við
-
Markaðurinn4 dagar síðanEitt elsta og þekktasta vörumerki landsins hefur nýjan kafla
-
Markaðurinn4 dagar síðanTilbúnar pizzur í gastróstærð
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanOpnaði draumabarinn eftir sjö ára velgengni
-
Markaðurinn6 dagar síðanBetri ráðningar geta dregið úr starfsmannaveltu
-
Markaðurinn3 dagar síðanStökkar franskar sem þú getur treyst á




