Frétt
SVEIT mun á næstu dögum höfða mál gegn Eflingu fyrir Félagsdómi
Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði – SVEIT hyggjast á næstu dögum höfða mál gegn Eflingu stéttarfélagi fyrir Félagsdómi m.a. í því skyni að viðurkennt verði að miðlunartillaga ríkissáttasemjara frá 1. mars 2023 sé óskuldbindandi fyrir félagsmenn SVEIT og skapi félagsmönnum Eflingar engin réttindi gagnvart þeim, að því er fram kemur í tilkynningu frá SVEIT.
SVEIT hefur ótvírætt umboð félagsmanna samtakanna til kjarasamningsgerðar. Félagsmenn samtakanna eru um 170 talsins og reka 300 veitingastaði um allt land. Innan SVEIT eru allt að 55% sem starfa í greininni á starfssvæði Eflingar.
Þrátt fyrir þetta hefur Efling sniðgengið SVEIT og neitað að gera kjarasamning við samtökin. Þess í stað heldur Efling því fram að miðlunartillaga milli Eflingar og Samtaka atvinnulífsins bindi félagsmenn SVEIT.
Á þetta getur SVEIT ekki fallist og telur þetta hvorki standast lög né stjórnarskrá. SVEIT hefur aldrei veitt Samtökum atvinnulífsins umboð til að koma fram fyrir hönd sinna félagsmanna. SVEIT geti því ekki talist bundið af ákvörðunum Samtaka atvinnulífsins eða af atkvæðagreiðslum innan vébanda þeirra sem félagsmenn SVEIT eiga engan atkvæðisrétt um.
Í tilkynningu segir að enga skoðun standist að rekstrarumhverfi fyrirtækja innan SVEIT og aðdráttarafl og samkeppnishæfni greinarinnar sé mótað með þessum hætti. Slíkt væri ólýðræðislegt og óréttmætt. Enn eigi því eftir að semja við SVEIT sem sé réttmætur umboðsaðili til kjarasamninga fyrir félagsmenn samtakanna.
Með því að höfða mál fyrir Félagsdómi vill SVEIT fá viðurkenningu dómstóla á þessum rétti sínum. Efling geti þá ekki framvegis sniðgengið SVEIT auk þess sem dómur í málinu myndi hafa fordæmisgildi fyrir samskipti SVEIT við önnur stéttarfélög.
-
Markaðurinn7 dagar síðanInnnes auglýsir spennandi sölustarf
-
Markaðurinn6 dagar síðanNýjar íslenskar kartöflur vekja alltaf eftirvæntingu
-
Markaðurinn7 dagar síðanNý uppskera af íslensku spergilkáli komin í verslanir
-
Frétt5 dagar síðanÁkærður fyrir að bera fram maura á Michelin-stað
-
Frétt4 dagar síðanGordon Ramsay, Marco Pierre White og Heston Blumenthal sameinast á ný í nýrri BBC þáttaröð
-
Frétt3 dagar síðanEndurbyggðu veitingastaðinn frá grunni eftir brunann
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanSex nýir komust í hóp þeirra 299 sem bera virtasta titil vínþjóna í heiminum
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel17 klukkustundir síðanRoyal Palm South Beach opnar á ný eftir 12,5 milljarða króna endurbætur




