Frétt
Leggur til bann við humarveiðar árin 2022 og 2023
Hafrannsóknastofnun leggur til í samræmi við varúðarsjónarmið að humarveiðar verði ekki heimilaðar árin 2022 og 2023.
Hafrannsóknastofnun leggur jafnframt til að veiðar með fiskibotnvörpu verði áfram bannaðar á afmörkuðum svæðum í Breiðamerkurdjúpi, Hornafjarðardjúpi og Lónsdjúpi til verndar humri.
Afli á sóknareiningu árið 2021 var sá minnsti frá upphafi og hefur lækkað samfellt frá hámarkinu árið 2007. Stofnstærð humars í stofnmælingunni 2021 hefur lækkað um 27% frá árinu 2016, en stofnmæling með núverandi fyrirkomulagi talninga á humarholum hófst þegar stofninn var þegar í mikilli lægð. Þéttleiki humarholna við Ísland árið 2021 var metinn 0.066 holur/m2 sem er með því lægsta sem þekkist meðal þeirra humarstofna sem Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) veitir ráðgjöf fyrir.
Fyrirliggjandi gögn benda til að nýliðun sé í sögulegu lágmarki og að árgangar frá 2005 séu mjög litlir. Verði ekki breyting þar á má búast við áframhaldandi minnkun stofnsins.
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanÍslenskur kokkur vekur athygli í Litháen
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanOmegn & Venner taka yfir SKÁL! við Njálsgötu
-
Keppni2 dagar síðanMikill skortur á fagmenntuðum framreiðslumönnum – fimm í námi við VMA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanMetnaðarfullur veitingastaður Róót opnar í Höfðatorgsturni
-
Markaðurinn6 dagar síðanÞrír heimar viskís – frá Skotlandi til Japan og Taívan
-
Markaðurinn2 dagar síðanGerðu verðsamanburð áður en þú kaupir
-
Frétt4 dagar síðanMilljörðum varið í að bjarga krám og lífga upp á verslunargötur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanNýjar hugmyndir úr tilraunaeldhúsi Noma á matseðilinn




