Vertu memm

Frétt

Ástand humarstofnsins kannað – Þekkt er að þegar humarveiði er dræm veiðast einkunn stærri dýr

Birting:

þann

Ástand humarstofnsins kannað - Þekkt er að þegar humarveiði er dræm veiðast einkunn stærri dýr

Jón Arnar Hinriksson stýrimaður við myndavélasleðann.

Humarleiðangur Hafrannsóknastofnunar fór fram dagana 6. til 15. júní síðastliðinn.

Stofnstærð humars er metin út frá humarholufjölda með neðansjávarmyndavélum. Þetta var í sjöunda sinn sem slíkur leiðangur er farinn.

Alls var myndað á 89 stöðvum í ár, á humarbleiðum allt frá Jökuldýpi í vestri til Lónsdýpis í austri. Árið 2021 þegar humarholur voru síðast taldar, var fjöldi holna metin vera tæpar 435 milljónir. Þá var mesti þéttleiki þeirra í Breiðamerkur og Lónsdjúpum um 0,09 humarholur á hvern fermeter. Um 600 milljón holur voru taldar á árunum 2016 – 2017, en talningar á holum hefjast þegar stofninn hafði náð mikilli lægð sökum nýliðunarbrests.

Í tilkynningu frá Hafrannsóknastofnun segir að niðurstöður þessa leiðangurs verða kynntar í haust þegar búið verður að fara yfir allt myndefnið, en fyrsta yfirferð bendir til þess að aukning verði frá síðasta mati.

Togað var á 17 stöðvum til að safna upplýsingum um stærðarsamsetningu og kynþroska. Almennt veiddist lítið af humri og voru flestir humrarnir stórir, en þekkt er að þegar humarveiði er dræm veiðast einkunn stærri dýr. Í leiðangrinum voru tekin háfsýni á 26 stöðvum til að fá upplýsingar um magn humarlirfa og samsetningu dýrasvifs á svæðinu.

Leiðangurinn gekk vel, en gæta þurfti veðurs við myndatökuna þar sem vindhraði og tilsvarandi sjólag mega helst ekki fara yfir 10 metra á sekúndu. Leiðangurinn fór fram um borð í rannsóknarskipi Hafrannasóknastofnunar Bjarna Sæmundssyni HF 30. Leiðangursstjóri var Jónas Páll Jónasson og skipstjóri Magnús Arinbjarnarson.

Mynd: Hafrannsóknastofnun

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið