Markaðurinn
Lærðu að fanga augnablikið: Myndagerð fyrir samfélagsmiðla í veitingageiranum
Þetta námskeið er ætlað fagfólki í matvæla- og veitingageiranum sem vill efla hæfni sína í myndagerð fyrir samfélagsmiðla og eigin nota. Unnið er með hagnýta nálgun þar sem þátttakendur læra að nýta aðstæður, ljós og umhverfi til að fanga augnablik og stemningu í starfi sínu með iPhone snjallsíma eða einfaldri myndavél.
Námskeiðið felur í sér að læra að búa til einfalt en vandað myndefni, og miðla því á réttan hátt í leik og starfi. Námskeiðið er kennt einu sinni í viku í 3 vikur, 4 klst. í senn. ATH – Námskeið þetta er ætlað þeim sem eiga Iphone síma og einfaldar myndavélar.
Fyrir hverja:
- Fagfólk í matvæla- og veitingagreinum sem vilja bæta myndatökufærni sína og fanga augnablikið þegar það gefst.
Markmið:
- Að þátttakendur öðlist traustan grunn og hagnýt verkfæri til að búa til betra myndefni, nýta ljós og umgjörð rétt, og vinna myndir á einfaldan hátt.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Myndefni og árangursríka notkun þess fyrir samfélagsmiðla
- Möguleika og takmarkanir iPhone snjallsíma og einfaldari myndavéla
- Gervilýsing innandyra og í lítilli birtu
- Leikmuni, bakgrunn og uppsetningu (styling)
- Kynningu á myndvinnsluforritum
- Verklegar æfingar, einstaklings- og hópaverkefni og heimaverkefni
Að loknu námskeiði á nemandi að:
- Geta tekið flottar myndir með iPhone snjallsíma eða einfaldri myndavél
- Búið til aðlaðandi myndefni fyrir samfélagsmiðla
- Geta nýtt lýsingu og umhverfið til að fanga stemninguna
- Unnið myndefni í iPhone snjallsíma
Nánari upplýsingar um námskeiðið og skráningu má finna hér.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanGæti ÓX orðið fyrsti íslenski veitingastaðurinn með tvær Michelin-stjörnur?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanSlow Food á Íslandi heiðrar Dominique Plédel Jónsson
-
Starfsmannavelta2 dagar síðanBrixton tekinn til gjaldþrotaskipta
-
Markaðurinn5 dagar síðanBeittir hnífar opna nýja vefverslun með opnunartilboðum
-
Frétt2 dagar síðanEldur kom upp í veitingastað á Selfossi
-
Markaðurinn5 dagar síðanFljótlegur og bragðmikill taco-réttur fyrir fjölskylduna
-
Markaðurinn5 dagar síðanLóan komin og júnítilboðin hjá Nathan líka
-
Keppni1 dagur síðanBarþjónar og fagfólk fagna sumrinu með alvöru stemningu



