Frétt
Íslenskir veitingastaðir sagðir of tregir til að hækka verð
Níels Hafsteinsson, framreiðslumeistari og veitingamaður með áratuga reynslu úr greininni, segir íslenska veitingamenn hafa verið of varfærna þegar kemur að verðhækkunum. Í viðtali í hlaðvarpinu Eftirvaktinni segir hann að rekstrarkostnaður, laun og opinber gjöld geri það að verkum að álagning á fínni veitingastöðum hér á landi sé mun lægri en víða erlendis, að því er fram kemur á visir.is.
Níels segir að launakostnaður geti numið um helmingi af veltu á meðan hráefniskostnaður sé oft um 40 prósent. Þegar þeir kostnaðarliðir hafi verið greiddir standi lítið eftir til að mæta húsaleigu og öðrum rekstrarkostnaði. Að hans mati hafi margir íslenskir veitingastaðir haldið aftur af verðhækkunum þrátt fyrir síhækkandi útgjöld.
Hann bendir einnig á að opinber gjöld á áfengi séu mun hærri á Íslandi en víða annars staðar. Sem dæmi nefnir hann að ef sama álagning væri notuð á húsbjór á Rauða ljóninu og á veitingastöðum sem hann rekur á Tenerife myndi verðið nema um 3.950 krónum.
Níels segir stöðu greinarinnar endurspeglast í því að veitingastaðir loki reglulega og að hagnaður þeirra sem standi eftir sé oft aðeins tvö til þrjú prósent. Hann leggur þó áherslu á að lausnin sé ekki að lækka laun starfsfólks heldur að verðlag endurspegli betur raunverulegan rekstrarkostnað. Nánar er fjallað um málið á visir.is og má lesa fréttina í heild sinni með því að smella hér.
Hægt er að hlusta á hlaðvarpið hér að neðan:
-
Markaðurinn5 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn5 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn6 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Keppni4 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Frétt2 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Keppni1 dagur síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni




