Viðtöl, örfréttir & frumraun
Íslenskir matreiðslumeistarar á Þingi NKF – Nýr forseti tekur við – Myndir frá Svíþjóð
Þing Norðurlandasambands matreiðslumeistara (NKF) fór nýverið fram í Rönnäng í Svíþjóð. Þetta var í fyrsta sinn í sögu sambandsins sem engin matreiðslukeppni fór fram á þinginu, en slíkar keppnir hafa hingað til verið fastur liður í dagskrá. Gestir tóku breytingunni vel og lýstu ánægju með að aukinn tími hefði skapast til samveru, umræðna og faglegs lærdóms.
Matur, menning og dagskrá þingsins
Þingið hófst á fimmtudegi þegar þátttakendur komu saman, en á föstudeginum var farið í ferð um sænska skerjagarðinn þar sem kynntur var staðbundinn matur og hráefni úr héraði. Aðalfundarstörf fóru svo fram á laugardegi og lauk þinginu með hátíðarkvöldverði um kvöldið, þar sem hin virtu Cordon Rouge orður samtakanna voru veittar fjórum félagsmönnum.
Sjá einnig: Heiður og viðurkenning: Íslenskir kokkar fá Cordon Rouge orðu í Svíþjóð
Leiðtogaskipti
Þórir Erlingsson, forseti NKF til tveggja ára, gaf ekki kost á sér í embættið áfram, en mun þó sitja áfram í stjórn samtakanna. Hann er jafnframt starfandi forseti Klúbbs matreiðslumeistara á Íslandi. Svíinn Marcus Hallgren, sem hefur undanfarin ár setið í stjórn NKF fyrir hönd Svíþjóðar, tók við forsetaembættinu.
„Það hefur verið mikil heiður að sitja sem forseti NKF síðustu tvö ár og ég hlakka til að vinna með Marcus að því að halda áfram því góða starfi sem unnið er innan NKF,“
segir Þórir.
Breytingar í stjórn – íslensk þátttaka áfram öflug
Ný stjórn kom saman að þingi loknu, þar sem Kyrre Dybdal frá Noregi var valinn varaforseti og Dennis Nielsen frá Danmörku gjaldkeri. Hver aðildarþjóð á tvo fulltrúa í stjórn samtakanna og hafa Íslendingar verið virkir þátttakendur í því starfi.
Árni Þór Arnórsson lét af sínu sæti í stjórn, en hann tók nýverið við sem varaforseti í nefndinni Chefs Without Borders, sem starfar á vegum Worldchefs. Rafn Heiðar Ingólfsson tók sæti í stjórn í hans stað. Árna var þakkað kærlega fyrir vel unnin störf, en hann hafði gegnt hlutverki gjaldkera NKF síðustu sex ár.

Ib Wessman, einn stofnenda Klúbbs matreiðslumeistara, ásamt yngsta þátttakandanum á þinginu – 73 ára aldursmunur á milli þeirra undirstrikar fjölbreytileika og samhug
Góð mæting og áhugaverður aldursmunur
Þingið var vel sótt og alls sátu það 15 íslenskir matreiðslumenn. Þing NKF er haldið á tveggja ára fresti og verður næsta þing haldið í Álaborg í Danmörku í maí 2027. Athygli vakti að Ib Wessman, einn stofnenda Klúbbs matreiðslumeistara, mætti á þingið en 73 ára aldursmunur er á honum og yngsta þátttakandanum á þinginu.
Myndir: kokkalandslidid.is
-
Bocuse d´Or6 dagar síðan„Ég var glaður og þakklátur fyrir að vera partur af þessu teymi“ segir Jakob Árni
-
Keppni3 dagar síðanBrons hjá Íslandi í bæði framreiðslu og matreiðslu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanRúnar snýr aftur á Hótel Holt sem yfirkokkur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanPítsuofninn kominn á GOTT eftir lokun Pítsugerðarinnar
-
Starfsmannavelta5 dagar síðanLamb Street Food og Mat Bar hætta rekstri
-
Bocuse d´Or3 dagar síðanKonráð Hilmarsson um Marseille: „Skemmtilegast var að heyra að Ísland væri komið áfram“
-
Íslandsmót barþjóna22 klukkustundir síðanReykjavík Cocktail Week lauk með úrslitum og hátíðarkvöldverði í Gamla Bíó – Myndaveisla
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanMyndir frá formlegri opnun á nýjum stað hjá Mat og drykk






























