Frétt
Innköllun á Veribest basmati hrísgrjónum vegna leysiefna
Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Veribest hrísgrjónum sem Garri ehf. flytur inn vegna leysiefna (MAOH) sem fundust í vörunni. Hrísgrjónin voru seld til stóreldhúsa og í eina verslun. Fyrirtækin hafa innkallað vöruna í samráði við heilbrigðiseftirlitssvæði.
Eingöngu er verið að innkalla eftirfarna framleiðslulotu:
- Vöruheiti: Basmati hrísgrjón
- Vörumerki: Veribest
- Innflytjandi: Garri
- Framleiðandi: Wiik & Co
- Pökkunaraðili og söluaðili: Nándin, Austurgötu 47, 220 Hafnarfjörður
- Best fyrir dagsetning: 23.09.2026
- Nettó þyngd: 800g
- Geymsluskilyrði: Þurrvara
- Dreifing: Nándin
Varan var seld í 800g pokum á tímabilinu 2. september 2025 til 25. janúar 2026.
Viðskiptavinum er bent á að farga vörunni eða skila til Matarbúðarinnar Nándin Austurgötu 47, 220 Hafnarfirði, [email protected], s. 4701300.
Mynd: mast.is
-
Markaðurinn4 dagar síðanInnnes auglýsir spennandi sölustarf
-
Keppni5 dagar síðanSiggi Chef hreppti titilinn Besti götubitinn 2026
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanNý bók fjallar um keppni þar sem Íslendingar hafa slegið í gegn
-
Markaðurinn4 dagar síðanNýjar íslenskar kartöflur vekja alltaf eftirvæntingu
-
Markaðurinn4 dagar síðanNý uppskera af íslensku spergilkáli komin í verslanir
-
Frétt6 dagar síðanVeitingastaðir gætu sótt meiri tekjur í ís yfir veturinn
-
Frétt2 dagar síðanÁkærður fyrir að bera fram maura á Michelin-stað
-
Frétt1 dagur síðanGordon Ramsay, Marco Pierre White og Heston Blumenthal sameinast á ný í nýrri BBC þáttaröð



