Keppni
Helga Signý sigraði í Barlady keppninni í annað sinn – Myndir

Sigurkokteillinn Ratatouille tryggði Helgu Signý Sveinsdóttur sigur í Barlady keppninni í annað sinn.
Úrslit Barlady kokteilakeppninnar á Íslandi fóru fram síðastliðinn miðvikudag, þar sem keppendur kepptu um réttinn til að fara fyrir hönd Íslands í alþjóðlegu Barlady keppninni sem fram fer á Corfu í Grikklandi dagana 6. – 8. mars næstkomandi.
Sigurvegari keppninnar árið 2026 er Helga Signý Sveinsdóttir frá Tipsý með kokteilinn Ratatouille, sem hlaut hæstu heildareinkunn dómnefndar. Í öðru sæti varð Kría, einnig frá Tipsý, með drykkinn Tom and Berry, og í þriðja sæti Brynja Ploy frá Jungle með kokteilinn Dang Gui.

Helga Signý Sveinsdóttir að störfum á barnum þar sem dómnefnd mat frammistöðu keppenda í Walk-Around fyrirkomulagi Barlady keppninnar.
Helga Signý vann einnig keppnina árið 2024 og er þetta því í annað sinn sem hún stendur uppi sem sigurvegari. Úrslitin voru tilkynnt við lokahóf sem haldið var á Veður sama kvöld.
Sjá einnig: Helga á Tipsý kom sá og sigraði í Barlady keppninni
Barlady keppnin er haldin af Barþjónaklúbbi Íslands (BCI) í samstarfi við Samtök Íslenskra Eimingarhúsa (SÍE) og hefur það að markmiði að efla fagmennsku, sýnileika og þátttöku kvenna og kvára í barþjóna geiranum á Íslandi. Keppnin fór fram í svokölluðu „Walk-Around“ fyrirkomulagi þar sem dómnefnd heimsótti vinnustaði keppenda og mat frammistöðu þeirra á heimavelli.

Dómarar fylgjast grannt með frammistöðu keppenda. Frá vinstri eru Eva María Sigurbjörnsdóttir, Brynja Hovdenak, Alba E. H. Hough, Ashley Marriot og Catherine Rivadeneyra.
Eftirfarandi eimingarhús tóku þátt í keppninni í ár: Eimverk Distillery, Hovdenak Distillery, Reykjavík Distillery og Brunnur Distillery, sem með þátttöku sinni leggja mikilvægt framlag til þróunar og eflingar íslenskrar kokteilamenningar. Í dómnefnd sátu Alba E. H. Hough frá Brunni, Eva María Sigurbjörnsdóttir frá Eimverki, Brynja Hovdenak frá Hovdenak, Catherine Rivadeneyra frá Reykjavík Distillery og Ashley Marriot, sigurvegari alþjóðlegu Barlady keppninnar frá því í fyrra.
„Barlady keppnin er mikilvægur vettvangur til að varpa ljósi á þá miklu fagþekkingu og sköpunarkraft sem finna má meðal kvenna og kvára í bar geiranum á Íslandi.
Frammistaða keppenda í ár var afar glæsileg og við hlökkum til að fylgjast með Helgu Signý keppa fyrir Íslands hönd á alþjóðlegum vettvangi,“
segir Teitur Riddermann Schiöth, forseti Barþjónaklúbbs Íslands.
Sigurvegari íslensku keppninnar árið 2025 fór alla leið og sigraði alþjóðlegu úrslitin, þar sem Ashley Marriot bar sigur úr býtum. Nú mun Helga Signý fara fyrir hönd Íslands á Corfu, þar sem keppendur frá fjölmörgum löndum heims etja kappi um Barlady heimsmeistaratitilinn 2026.
Frekari upplýsingar um alþjóðlegu keppnina má finna á www.barlady.net.
Meðfylgjandi myndir tók Hákon Freyr Hovdenak.
-
Keppni3 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn7 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Keppni6 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Keppni3 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Frétt4 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð
-
Markaðurinn4 dagar síðanSecret Garden vörulínan stækkar hjá Drykkur heildsölu
















































