Frétt
Fiskidagurinn mikli 2019 – Myndir
Fiskidagurinn mikli var haldinn í 19. sinn í Dalvíkurbyggð s.l. helgi. Þúsundir gesta nutu gestrisni gestgjafanna. Það var magnað og stjórnendum til mikillar gleði að sjá trausta gesti mæta sem aldrei fyrr þrátt fyrir að í heila viku hafi verið spáð afar vondu veðri sem að sannarlega kom ekki á meðan að Fiskidagurinn mikli stóð yfir.
Matseðill Fiskidagsins mikla hefur aldrei verið eins fjölbreyttur enda um 25 réttir á seðlinum.
Sjá einnig: Matseðill Fiskidagsins Mikla 2019 er klár og afar áhugaverður
Hinsegin dagar í Reykjavík voru heiðursgestir Fiskidagsins mikla og þeim tengt var tónlistardagskrá, regnbogagata vígð, ræðumaður á setningunni var fulltrúi þeirra og víða var flaggað og skreytt. Stjórnendur Fiskidagsins mikla, gestir og heimamenn höfðu á orði að það hefði verið dásamlegt að hafa þessa heiðursgesti og að geta stutt mannréttindi og margbreytileika.
Á endanum er eitt sem stendur uppúr eftir svona stóra helgi en það er kærleiksrík samvera með fjölskyldu og vinum.
Vináttukeðjan – Fjöldaknús
Föstudaginn 9. ágúst var dagskrá í kirkjubrekkunni sem er nokkurskonar setningarathöfn fyrir Fiskidaginn mikla. Vináttukeðjan er notaleg stund þar sem staldrað er við og hugað að vináttunni og náungakærleikanum. Það var Sigurður Þorri Gunnarsson útvarspmaður á K100 sem sá um vináttukeðjuræðuna sem fulltrúi hinsegin daga í Reykjavík. Hljómsveitirnar Angurværð og Ljótu hálfvitarnir glöddu gesti og Friðrik Ómar Hjörleifsson og Gyða Jóhannesdóttir ásamt karlaröddum úr Dalvíkurbyggð fluttu hið árlega lag Mamma.
Heimamenn færðu gestum fléttuð vináttuarmbönd, vináttufána, knúskort og í lokin var innilegt fjöldaknús til að leggja línurnar fyrir helgina.
Fiskisúpukvöldið mikla haldið í 15. sinn
Á föstudagskvöldinu buðu um 120 fjölskyldur í Dalvíkurbyggð uppá fiskisúpu og vinalegheit. Hver sá sem bauð uppá súpu var með sína uppskrift. Þetta var einstaklega gott og ljúft kvöld, gestir röltu um bæinn og nutu þess að smakka fjölbreyttar súpur og áttu innihaldsríka samveru með fjölskyldu og vinum.
Rusl til sýnis – Fjörur hreinsaðar. Nýtt verkefni
Arctic Adventures ásamt sjálfboðaliðum tók þátt í dagskránni í ár með hreinsun á fjörum við utanverðan Eyjafjörð. Arctic Adventures er nýtt fyrirtæki í hópi aðalstyrktaraðila Fiskidagsins mikla. Verkefnið að hreinsa fjörurnar er stærra en skipuleggjendur gerðu sér grein fyrir og munum við halda áfram með skipulagningu og hafa þetta áfram á dagskránni. Mikið magn af rusli fannst og var það til sýnis í tveimur gámafletum. Gestum fannst þetta áhugavert og voru margir undrandi yfir því hve mikið magn þetta var.
Samhjálp fær matarsendingu
Fiskidagurinn mikli færir Samhjálp í Reykjavík mat sem m.a var eftir Fiskidaginn. Þetta hefur verið gert í nokkur ár og það gleður stjórnendur Fiskidagsins að ekkert fari til spillis og að geta glatt og gefið af okkur á fleiri stöðum.
Tónleikar á heimsmælikvarða – Kraftmikil flugeldasýning
Hátíðinni lauk með Fiskidagstónleikum og flugeldasýningu í boði Samherja. Það er óhætt að segja að enn eina ferðina hafi gestir sem mættu fyrir neðan hafnarbakkann á Dalvík orðið vitni að einum glæsilegustu tónleikum sem haldnir eru hér á landi og fagmennskan var í fyrirrúmi.
Í fararbroddi voru heimamennirnir Friðrik Ómar, Matti Matt og Eyþór Ingi. Meðal annarra sem komu fram voru: Páll Óskar, Auður, Herra Hnetusmjör, Þorgeir Ástvaldsson, Eyjólfur Kristjánsson, Svala Björgvins, Bjartmar Guðlaugsson, Valdimar, Sigga Beinteins og Grétar Örvarsson.
Flugeldasýning Björgunarsveitarinnar á Dalvík setti lokapunktinn á einstaka fjölskylduhátíð með kraftmikilli og magnaðri flugeldasýningu þar sem að gasbyssur léku nýtt hlutverk. Þessi sýning var að margra mati ein sú besta frá upphafi.
Fiskidagurinn mikli 2019 heiðrar Gunnar Arason fyrrverandi skipstjóra
Gunnar var heiðraður fyrir framlag sitt til sjávarútvegs og farsælan skipstjóraferil með skip frá Dalvík. Hann varð skipstjóri hjá útgerð Aðalsteins Loftssonar á Dalvík árið 1963, þá aðeins 22 ára gamall, fyrst með Baldvin Þorvaldsson EA 24 og síðan Loft Baldvinsson EA 124.
Árið 1968 tók hann við nýju og glæsilegu skipi, Lofti Baldvinssyni EA 24. Síldin hafði þá breytt göngu sinni frá hefðbundnum miðum íslenskra fiskiskipa. Hinu nýja skipi var þá um haustið haldið til veiða í Norðursjónum og náði á stuttum tíma frábærum árangri við síldveiðar þar og frágang aflans, sem tryggði þeim hæstu verð. Það varð með öðru til þess að Loftur Baldvinsson EA 24 var um árabil með mestu verðmæti allra íslenskra fiskiskipa. Gullaldarár skipsins voru þegar best gekk í Norðursjónum á árunum 1970 til 1975.
Skipverjar á Lofti Baldvinssyni voru flestir frá Dalvík og það munaði um það að tekjuhæstu sjómenn landsins bjuggu hér. Það er stundum talað um það að heil gata hafi meira og minna verið byggð einbýlishúsum skipverja á Lofti á þessum árum.
Aukin verðmæti vegna gæða aflans urðu aðall áhafnar Lofts Baldvinssonar og þar fór skipstjórinn fremstur meðal jafningja.
Meðfylgjandi myndir tók Bjarni Eiríksson.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun9 klukkustundir síðan
Slippurinn í Vestmannaeyjum tekur sitt síðasta tímabil 2025 – Gísli Matt: ástæða lokunarinnar er sú að við trúum því að allt gott taki enda
-
Frétt3 dagar síðan
Nýr miðlægur listi yfir sveina með starfsréttindi
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðan
Flottir ekta ítalskir réttir og pizzur af betri gerðinni – Fagnaðu gamlárskvöldinu með stæl á Piccolo – Myndir
-
Food & fun1 dagur síðan
Tveir íslenskir gestakokkar verða á Food and Fun hátíðinni í Stavanger
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðan
Veitingageirinn í jólaskapi
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðan
Gleðileg jól, kæru lesendur – Veitingageirinn.is þakkar fyrir sig
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðan
Árið 2024 var stórt ár fyrir matgæðinga á KEF
-
Markaðurinn4 dagar síðan
Jólakveðja frá Leiðtoga matvæla- og veitingagreina