Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Dísu Café opnað í hjarta Húsavíkur
Nýtt kaffihús hefur litið dagsins ljós á Húsavík en Dísu Café var formlega opnað nú á dögunum í gömlu bifreiðastöðinni við Vallholtsveg 3 í hjarta bæjarins. Staðurinn ber með sér hlýlegt og persónulegt yfirbragð þar sem gestum er boðið upp á heimilislegt andrúmsloft og kræsingar sem allar eru unnar frá grunni.
Eigandi kaffihússins er Fanndís Dóra Qypi Þórisdóttir sem leggur áherslu á að allt sé bakað með ást og alúð. Á Dísu Café er að finna fjölbreytt úrval kaffidrykkja, nýbakað bakkelsi, patisserie eftirrétti, samlokur og fleira góðgæti.
Sérstaka athygli vekur svokallað „ömmuhorn“ þar sem boðið er upp á ekta heimabakaðar kökur úr uppskriftabók ömmu. Þar má finna gömlu, klassísku kökurnar sem margir kannast við og eiga sér sérstakan stað í hjarta gesta.
Dísu Café er kærkomin viðbót við veitingaflóru Húsavíkur og lofar góðu fyrir kaffihúsaunnendur nær og fjær.
Kaffihúsið er opið föstudaga til sunnudaga frá kl. 10 til 17.
Myndir: facebook / Dísu Café
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanÞarftu að selja/kaupa notuð eða ný tæki? Þá er þessi facebook hópur klárlega fyrir þig
-
Frétt6 dagar síðanAðgerðir boðaðar gegn yfirráðum stórfyrirtækja í kjötvinnslu
-
Markaðurinn3 dagar síðanFastagesturinn verður sífellt mikilvægari
-
Markaðurinn3 dagar síðanTilboð fyrir mötuneyti hjá Bako Verslunartækni
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanGrunur um fölsuð vín fyrir rúmlega 80 milljónir króna
-
Markaðurinn2 dagar síðanAllt að 47 prósenta afsláttur í september
-
Frétt1 dagur síðanRannsókn á alvarlegu E. coli-hópsmiti enn ólokið
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanFrá kartöflum yfir í finnskt bygg
















