Viðtöl, örfréttir & frumraun
BBQ-hátíð verður haldin í fyrsta sinn á Íslandi núna um helgina
RVK BBQ Festival 2026 verður haldin í Kolaportinu dagana 30. og 31. maí og er um að ræða fyrstu íslensku matarhátíðina sem er alfarið helguð BBQ- og reykmatargerð. Að hátíðinni stendur Götubitinn undir stjórn Roberts Magnússonar.
Hátíðin verður haldin í hinu sögufræga húsnæði Kolaportsins í miðborg Reykjavíkur og ber yfirskriftina „Reykur. Eldur. Stemning.“ Samkvæmt skipuleggjendum er innblásturinn meðal annars sóttur til erlendra BBQ-hátíða á borð við Meatopia í London.
Markmiðið með RVK BBQ Festival er að leiða saman grillara, framleiðendur og mataráhugafólk í kringum reykmat, grillmenningu og lifandi matarupplifun. Þar munu bæði þekkt nöfn úr bransanum og áhugagrillarar sýna listir sínar fyrir gestum.
Hátíðin verður opin laugardaginn 30. maí frá klukkan 12 til 21 og sunnudaginn 31. maí frá klukkan 12 til 18. Aðgangur verður ókeypis fyrir gesti.
Nánari upplýsingar og dagskrá má finna á bbqfestival.is.
-
Markaðurinn6 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn6 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn7 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Keppni5 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Keppni2 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Frétt3 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur




