Nemendur & nemakeppni
Á Íslandi sárvantar kjötiðnaðarmenn
Nautalund, hamborgarhryggur, beikon, pylsur, bjúgu, skinka, salami og malakoff.
Þetta ljúfmeti verður ekki til af sjálfu sér en það er meðal annars í verkahring menntaðra kjötiðnaðarmanna á Íslandi að skera til kjöt og fullvinna til neytenda. Kjötiðnaður er ein undirstaða matvælaframleiðslu hvort sem vel eða illa árar. Á síðustu árum hefur orðið mikil framþróun í fagi kjötiðnaðarmanna og fagið sífellt fjölbreyttara. Það sést best af sælkeraverslunum og kjötvinnslum sem vinna úrvalsvöru okkur öllum til yndisauka.
En það vantar kjötiðnaðarmenn. Það er enda ekkert atvinnuleysi meðal kjötiðnaðarmanna. Námið tekur fjögur ár að loknu grunnskólaprófi, þar af 3 annir í skóla og 5 annir í launuðu starfsnámi. Og eins og með aðrar iðngreinar geta þeir sem hafa reynslu í matvælaiðnaði undirgengist raunfærnimat og mögulega stytt sér leið að námslokum.
Laun kjötiðnaðarmanna eru góð og þeirra bíða fjölbreytt atvinnutækifæri og eru möguleikar miklir á að skapa sér spennandi tækifæri með nýsköpun og hugmyndaauðgi. Almennt er nám í kjötiðn samningsbundið en nú ætlar Menntaskólinn í Kópavogi að bjóða einstaklingum að hefja nám í kjötiðn á hausti komandi án námssamnings. Þarna er tækifæri. Hafirðu unnið í matvælaiðnaði, matreiðslu, nú eða bara ef þú hefur áhuga á mat, ættir þú að skoða nám í kjötiðn í Menntaskólanum í Kópavogi. Þar er bjart yfir öllu, aðstaða til fyrirmyndar og kennarar frábærir. Komdu fagnandi og hafðu samband á [email protected] – við svörum þér að bragði.
Guðríður Eldey Arnardóttir
Skólameistari Menntaskólans í Kópavogi
-
Markaðurinn7 dagar síðanMötuneyti á Húsavík óskar eftir öflugum einstaklingi í eldhús – Matseðlagerð, innkaup og dagleg eldamennska
-
Frétt6 dagar síðan2,3 milljarðar króna í mat á ári, svona er eldhúsið á Rikers rekið – Myndband
-
Markaðurinn3 dagar síðanReyndur kokkur óskast í vaktstjórastarf á Snæfellsnesi
-
Markaðurinn7 dagar síðanMS kynnir tvær nýjar bragðtegundir af kotasælu í byrjun mars
-
Markaðurinn6 dagar síðanKokkur óskast á Fosshótel Jökulsárlóni, fullt starf í einstöku umhverfi
-
Markaðurinn5 dagar síðanAllt að 60% afsláttur af vinsælum vörum í takmarkaðan tíma
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel10 klukkustundir síðanNýr kafli í miðborginni, Gamla Reykjavík tekin til starfa
-
Keppni5 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands blæs til kokteilkeppni, frjálst þema og vegleg verðlaun





