Markaðurinn
Við leitum að öflugum hótelstjóra á Fosshótel Vestfirði
Hótelstjóri skipuleggur og stýrir daglegum rekstri hótelsins þ.á.m. gestamóttöku, bókunum, veitingastað, þrifum, viðhaldi fasteignar og mannauðsmálum. Hótelstjóri vinnur náið með aðalskrifstofu í sölu og markaðsmálum og sér til þess að hótelið uppfylli gæðastaðla og rekstraráætlun fyrirtækisins.
Hótelstjóri leiðir hóp starfsmanna og ber ábyrgð á hagkvæmum rekstri með velferð og ánægju starfsmanna og gesta að leiðarljósi.
Starfstími er 1. apríl til 15. október
Hæfniskröfur
- Árangursrík reynsla sem stjórnandi í hótel og/eða veitingarekstri.
- Menntun á sviði hótelstjórnunar eða iðnnám í fram- eða matreiðslu kostur.
- Afbragðs færni í samskiptum, jákvætt viðmót og rík þjónustulund.
- Frumkvæði, sjálfstæði, nákvæmni og skipulag í vinnubrögðum.
- Fjármálalæsi og greiningarhæfni.
- Góð kerfis- og tölvukunnátta, þekking á Opera Cloud, Business Central og H3 kostur.
Ábyrgð
- Fagleg stjórnun, leiðsögn, samræming og þróun starfsmanna.
- Fjármál og rekstrargreiningar.
- Þjónustu-, gæða- og öryggisstjórnun.
- Verkefna- og ferlastýring.
- Rekstur og viðhald fasteignar.
Hlutverk Íslandshótela er einstök gestrisni.
Öflug liðsheild Íslandshótela starfar samkvæmt eftirfarandi gildum:
Fagmennska – Samvinna – Hugrekki
Umsækjendur eru beðnir að senda inn umsókn ásamt ferilskrá og kynningarbréfi.
—————————————————————-
Óskir um nánari upplýsingar sendist á Hjört Valgeirsson, framkvæmdastjóra rekstrarsviðs, [email protected] eða Ernu Dís Ingólfsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðssviðs, [email protected]
Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknarfrestur er til og með 20. janúar 2025.
-
Markaðurinn3 dagar síðanInnnes auglýsir spennandi sölustarf
-
Keppni4 dagar síðanSiggi Chef hreppti titilinn Besti götubitinn 2026
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanNý bók fjallar um keppni þar sem Íslendingar hafa slegið í gegn
-
Starfsmannavelta6 dagar síðanSkúrinn í Stykkishólmi stefnir á lokun eftir 11 ára rekstur
-
Markaðurinn2 dagar síðanNýjar íslenskar kartöflur vekja alltaf eftirvæntingu
-
Markaðurinn3 dagar síðanNý uppskera af íslensku spergilkáli komin í verslanir
-
Frétt5 dagar síðanVeitingastaðir gætu sótt meiri tekjur í ís yfir veturinn
-
Frétt1 dagur síðanÁkærður fyrir að bera fram maura á Michelin-stað



