Vertu memm

Viðtöl, örfréttir & frumraun

Hákon Már býður til veislu í aðdraganda jóla

Birting:

þann

Hótel Holt

Margir af þekktustu matreiðslumönnum og bestu þjónum landsins fengu „uppeldi“ sitt á Holtinu og áhrifa þess gæta víða enn þann dag í dag. Einn af þeim þekktustu er Hákon Már Örvarsson sem byrjaði í eldhúsinu á Holtinu 1994.
Mynd: holt.is

Hótel Holt opnar dyr sínar aftur fyrir matargesti í aðdraganda jóla þegar einn fremsti matreiðslumaður landsins, Hákon Már Örvarsson, verður með „pop-up“ í eldhúsinu fjórar helgar í röð.

Fyrsta kvöldið verður fimmtudaginn 24. nóvember. Opið er fyrir gesti fimmtudags, föstudags og laugardagskvöld og í hádeginu fimmtudaga og föstudaga fram til 17. desember.

Hákon Már Örvarsson - Hótel Holt

Í boði verður fimm rétta matseðill ásamt vínpörun.

Forréttir:
Steikt fersk hörpuskel í trufflusmjöri, blómkálsmauk og heslihnetur

Bleikjutartar, styrjukavíar, avocado, nordic wasabi, créme fraiche, sítrónukrem, karsi og stökkar brauðkruður

Andalifur „foie gras“ og andalæri confit,-mósaik terrine. Hátíðarkryddað granatepla og roðarunna eplachutney, ristað Brioche brauð

Aðalréttir:
Innbakað dádýrafille Wellington, rauðvínssósa með dökku súkkulaði, kartöflumauk, gljáð rósakál

eða

Ofnsteiktur skötuselur á beini, salvía, kapers,- valhnetu beurre noisette ásamt Nauta osso bucco ravioli í eigin sósu, rótargrænmeti

Eftirréttur:
Riz a´la mande hrísgrjónabúðingur, hvít súkkulaði sabayon, möndlur, mandarínuískrap


Hádegismatseðill
Veljið 2 rétti kr. 6.900
Veljið 3 rétti kr. 8.900
5 rétta kr. 12.900

Kvöldverðarmatseðill
5 rétta kr. 15.900
Vínpörun (bæði hádegi og kvöld)
3 réttir kr. 8.900
5 réttir kr. 12.900

Borðapantanir á dineout.is

Hákon Már: „Það má því segja að ég sé kominn aftur á kunnuglegar slóðir….“

Listasafnið á Hótel Holti skipar stórt hlutverk í veitingahúsasögu Íslands en það opnaði fyrst dyr sínar árið 1965.   Um árabil var Holtið miðpunktur veitingahúsamenningarinnar á Íslandi og það viðmið sem allir litu til þegar meta átti gæði matar og þjónustu.

Holtið naut góðs af einstakri umgjörð, hvert rými lítið listasafn, barinn með afslappað andrúmsloft við arineld, koníaksstofan sem minnti á breskan séntilmannaklúbb þar sem hægt var að sökkva sér ofan í mjúka sófa úr dökku leðri og svo auðvitað sjálft Listasafnið eða Gallerý, matsalurinn þar sem margar af flottustu veislum Íslands hafa verið haldnar.

Hótel Holt

Það voru þau Þorvaldur Guðmundsson og eiginkona hans Ingibjörg Guðmundsdóttir sem stofnuðu hótelið en frá árinu 2004 hefur það verið í eigu Geirlaugar dóttur þeirra.
Mynd: holt.is

Matargerðin hefur frá upphafi sótt í franska eldhúsið og var klassísk fyrstu árin. Margir af réttunum sem í boði voru nutu það mikilla vinsælda að þeir voru á matseðli áratugum saman eins og graflaxinn með ristuðu brauði og víkingasósu, crepes suzette að ekki sé minnst á Holtsvagninn sem ekið var um salinn en á honum mátti finna m.a. turnbauta með béarnaise og heilsteiktan lambahrygg sem var sneiddur niður, eða „trancheraður“ fyrir framan gesti af þjónum í sal.

Það var svo á áttunda áratug síðustu aldar að Holtið fór að skera sig í auknum mæli frá öðrum veitingahúsum og mynda sér sérstöðu. Matreiðslumenn Holtsins fengu frelsi til að þróa matargerðina frá þeirri íhaldssemi sem hafði verið ríkjandi í matargerð, ekki bara á Íslandi heldur um Evrópu alla. Straumar á borð við nouvelle cuisine, sem þá þóttu mjög framandi, fóru að hafa áhrif inn í eldhúsið á Holtinu og það varð leiðandi í því að þróa og móta veitingahúsamenninguna.

Hákon Már Örvarsson

Hákon Már Örvarsson.
Hákon hefur unnið til margvíslegra verðlauna á ferli sínum, unnið brons-verðlaun í Bocuse d’Or keppninni svo fátt eitt sé nefnt.
Mynd: úr einkasafni

Margir af þekktustu matreiðslumönnum og bestu þjónum landsins fengu „uppeldi“ sitt á Holtinu og áhrifa þess gæta víða enn þann dag í dag. Einn af þeim þekktustu er Hákon Már Örvarsson sem byrjaði í eldhúsinu á Holtinu 1994 eftir að hafa verið nemi á Fiðlaranum á Akureyri. Eftir að hafa starfað í millitíðinni sem aðstoðaryfirkokkur á hinum þekkta veitingastað Leu Linster í Lúxemborg kom hann aftur á Holtið sem aðstoðaryfirkokkur áður en hann varð yfirkokkur á Holtinu 1999-2000.

Veisluþjónusta - Banner

Í framhaldinu starfaði hann um skeið sem yfirkokkur hjá Leu Linster og Vox.

Hann rak einnig um tíma veitingastaðinn Essensia og hefur séð um matinn í veiðihúsunum í Haffjarðará, Miðfjarðará og Norðurá.

Hákon hefur unnið til margvíslegra verðlauna á ferli sínum, meðal annars hefur hann verið valinn Matreiðslumeistari ársins, unnið brons-verðlaun í Bocuse d’Or keppninni og Norðurlandakeppni.

Hákon segir það vera gaman og spennandi að koma aftur inn í eldhúsið á Holti.

„Ég var fyrst ráðinn hingað inn kvöldið sem ég var að elda fyrir sveinsprófið sem matreiðslumaður. Eldhúsið á Holtinu var þá eitt það besta á landinu og þessi tími hér hafði mjög mótandi áhrif á mig. Það má því segja að ég sé kominn aftur á kunnuglegar slóðir,“

segir Hákon Már.

Það voru þau Þorvaldur Guðmundsson og eiginkona hans Ingibjörg Guðmundsdóttir sem stofnuðu hótelið en frá árinu 2004 hefur það verið í eigu Geirlaugar dóttur þeirra.

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið