Vertu memm

Viðtöl, örfréttir & frumraun

Pepsi aðdáandi slær heimsmet – Christian: „Ég á yfir 12 þúsund Pepsi dósir“ – Vídeó

Birting:

þann

Christian Cavaletti

Christian Cavaletti

Ítalski Pepsi aðdáandinn Christian Cavaletti á gríðarlegt safn af Pepsi-dósum. Úrvalið er það mikið að það hefur slegið heimsmet í stærsta safni af Pepsi-dósum.

Safnið inniheldur 12.402 dósir frá öllum heimshornum og margar dósir eru mjög sjaldgæfar.

Christian, sem er upprunalega frá Mílanó, er með meistaragráðu í lífrænni efnafræði, vinnur sem svæðisstjóri í vefnaðarvörufyrirtæki og hans stærsta áhugamál er að safna Pepsi-dósum frá öllum heimshornum.

Christian sló metið í fyrsta sinn í mars árið 2004 með 4.391 Pepsi-dósir. Christian fæddist árið 1970 og byrjaði upphaflega að safna Pepsi-dósum 1. júní 1989.

Hann deilir þessari ástríðu með bróður sínum Edoardo, sem byrjaði að fá áhuga á Pepsi-dósum eftir að hafa séð bíómyndina „Back to the Future“ sem kom út árið 1985. Í bíómyndinni pantar Marty McFly, sem leikinn er af stórleikaranum Michael J. Fox,  Pepsi og fær nútímalega Pepsi flösku sem ber heitið „Pepsi Perfect“.

Bræðurnir eru oft kallaðir „Pepsi-tvíburarnir“, þó að Edoardo Cavaletti sé átta árum eldri en Christian.

Á meðal safnsins hjá Christian má finna fyrstu útgáfuna af Pepsi-dós sem hefur verið gerð.

Safnið inniheldur meðal annars ofurhetjur úr Marvel heiminum og „Aviones de Combate“, sem þýðir bardagaþotur, og er það á meðal verðmætustu safngripum sem framleidd voru á níunda áratugnum. Áætlað verðmæti þess er 40 þúsund dollarar eða ca. 5.5 milljónir íslenskra króna.

En hvað er uppáhalds Pepsi drykkur Christian?

„Wild Cherry útgáfan frá Bandaríkjunum“

sagði Christian í myndbandi sem hægt er að horfa á hér að neðan, en hann drekkur einnig Coca Cola svo það komi skila:

Mynd: guinnessworldrecords.com

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið