Vertu memm

Viðtöl, örfréttir & frumraun

Ítölsk matar- og menningarveisla á Stracta hótel – Ef þú mætir í Inter treyju þá þarftu að greiða talsvert hærra verð fyrir skemmtunina

Birting:

þann

Stracta hótel

Helgina 27. og 28. janúar næstkomandi mun Michele Mancini (Mike) kokkurinn hans Buffon á hótelinu Stella Della Versilia, sem er í eigu Buffon fjölskyldunnar, stýra dásamlegum galakvöldverðum á Stracta ásamt Hilmari og hans kokkagengi.

Einnig verður Einar Björn (Einsi Kaldi/Freddo) á hliðarlínunni til að allt fari vel fram en hann og Mike eru perlu vinir…. nema þegar kemur að fótbolta, þar sem Einsi er Inter stuðningsmaður og Mike að sjálfsögðu Juventus.

Inter treyjurnar

Mike vill hafa þá reglu að þeir sem mæta í Inter treyjum þurfi að greiða talsvert hærra verð fyrir skemmtunina!

Einnig verður regla um að þeir sem mæta í treyjum frá öðrum smá liðum á Ítalíu, eins og Lacio, liðinu hans Kidda Gogga, þeir þurfa líka að greiða hærra verð að sjálfsögðu.

Hemmi Hreiðars, er sammála þessari reglu, en hann er einlægur Juventus maður ætlar að vera í móttökunni alla helgina og ganga úr skugga um að þeir sem ekki fara eftir reglum um búninga val verði rukkaðir sérstaklega.

Andrea Falaschi, mjög þekktur kjötiðnaðarmaður mætir, og verður með námskeið og á bístróinu verður salami og hráskinka frá honum á boðstólum, þ.e. í hádeginu fös., lau. og sun.

Hann hefur þróað íslenskt-ítalskt hrá lamb, sem er að sögn sjúklega gott og hver veit nema að hann taki smakk með sér? Allar vörur frá þeim Falaschi feðgum eru án rotvarnarefna, en þær verða til sölu þessa helgi.

Í miklu vinfengi við marga af þekktustu kokkum heims

Halla Margrét (að öllum líkindum) og Alexander Jarl, óperusöngvarar sem hafa búið og starfað á Ítalíu í fjölmörg ár munu sjá um söng.

Claudio og Marco Savini, frá Savitar mæta með trufflur og truffluvörur. Claudio hefur verið útnefndur ambassador ítölsku trufflunnar erlendis, en hann byrjaði á að kynna hana í Brasilíu fyrir nokkrum tugum ára. Í dag er hann í miklu vinfengi við marga af þekktustu kokkum heims eins og Alex Atala.

Þær verða kynntar og einnig gefið smakk. Hægt verður að kaupa vörur til að taka með heim og svo verða þær auðvitað í einhverjum hlutverkum á galakvöldverðunum og á bístróinu í bland við vörurnar frá Falaschi feðgum.

Hver veit nema þeir félagar mæti?

Bæði Buffon og Ronaldo hafa verið ambassadorar hvítu trufflunnar, fyrir hönd Savitar. Hver veit nema þeir félagar mæti?

Gísli Kristófersson (pabbi Ollu, Georgs og Rúriks) verður líklega með kynningu á sérstökum rétt, þ.e. hvíttrufflu hunang með harðfisk, en hann er afar ljúfur, þ.e. þeir báðir Gísli og harðfiskurinn.

Að lokum mæta Alberto (hann er nokkurs konar Guðfaðir þessa hóps, þar sem hann stóð fyrir fyrstu Íslandsheimsókn megninu af þátttakendum) og Pep fyrrverandi þingmaður af spænska þinginu, en þeir eru einlægir Íslandsvinir. Þeir munu kynna dásamlega eyju skammt frá Ibiza, en sú eyja heitir Formentera og er t.a.m. uppáhalds dvalarstaður Erró.

Þeir verða með kynningu á vínum og mat frá þessari Paradísareyju, ásamt því að ráðleggja fólki um gistingu sem þeir báðir hafa uppá að bjóða.

Páll Magnússon og Simmi Vill veislustjórar

Páll Magnússon mun sjá um veislustjórn, en hann kom sérstaklega til Ítalíu í haust til að kynnast þátttakendum og fara yfir dagskrá helgarinnar.

Reyndar verður Palli veislustjóri annað kvöldið á meðan Simmi Vill, stýrir hinu. Hann er líka búinn að taka hús á öllum þátttakendum á Ítalíu.

Svo verða bæði vín- og matarkynningar, þannig að allir ættu að finna eitthvað sér til hæfis.

Matseðill ítölsku dagana:

Galakvöldverðir

APERITIVO KL 19:00

Byrjað verður á samveru kokka, skemmtikrafta og gesta þar sem dreypt verðum á vínum, margskonar ítölskum kokteilum og ýmsum smáréttum, eins og sgabei (djúpsteikt brauð) með lardo, bruschettu með kjúklingalifur með hvítri trufflu, ýmsar tegundir af salami frá Falaschi feðgum, hvíttrufflu osta ídýfa o.fl.
Það verður sungið rifist um fótbolta, farið í sjómann og sitthvað fleira.

PRIMO PIATTO KL: (BARA ÞEGAR VIÐ ERUM TILBÚIN)

Ravíóli fyllt með trufflumauki frá Savitar (fyrir þá sem ekki líkar trufflur fá ravíóli með porchini sveppamauki)

SECONDO KL: (FLJÓTLEGA EFTIR PRIMO PIATTO)

Osso buco alla Milanese með íslenskum lambaskanka (Michele “Mike”) vill eindregið blanda saman hefðbundnum ítölskum réttum við þá íslensku.

DOLCE

Skyramísú (Þarf ekki að segja meira)

Hádegismatseðill í Bístróinu fös. 27, lau. 28 og sun. 29. jan. (Trufflu vörur frá Savitar og salami og hráskinka frá Falaschi feðgum verður uppistaðan í réttum bístrósins)

Hráskinku-, salami og ostabakki (30 mánaða Parmigiano Reggiano). Með honum fylgir hvíttrufflu hunang og hunang frá bíflugnabónda í Liguria héraði.

Blandaður bruschettu platti, með trufflumauki, chianina ragú og hvíttrufflu kjúklingalifur

Cesar salat með kjúkling og Oro Bianco (algjörlega himneskt hvítvíns hvíttrufflu edik)

Hráskinka með grillaðri melónu og Saba (hvíttrufflu balsamic)

Tagliatelle með chianina ragú

Porchetta

Verð og nánari dagskrá verður auglýst á heimasíðu Stracta.

Mynd: stractahotels.is

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið