Vertu memm

Kokkalandsliðið

Íslenskum matvælum vel tekið í Sviss | Gunnar Karl matreiddi lambakjöt, þorsk og lax og bauð gestum að smakka

Birting:

þann

Á sýningunni IGEHO

Íslenskur fiskur, lambakjöt og skyr voru megin uppistaða þess íslenska hráefnis sem kynnt var á IGEHO sýningunni í Basel í Sviss í nóvember s.l.

Þetta er í fyrsta sinn sem matvæli frá Íslandi eru kynnt á sýningunni en markmiðið var að sýna fram á sérstöðu Íslands sem framleiðanda á úrvalshráefni. Fjöldi fólks heimsótti íslenska þjóðarbásinn alla fimm dagana sem sýningin stóð yfir og sýndu þeir íslenska matnum mikinn áhuga.

Matreiðslumaðurinn Gunnar Karl Gíslason matreiddi lambakjöt, þorsk og lax og bauð gestum að smakka, sem lýstu yfir mikilli ánægju með það sem í boði var.  Þátttakendur á íslenska sýningarsvæðinu auk Íslandsstofu voru: Ice-co, Kjarnafæði, SAH afurðir, MS og Iceland Responsible Fisheries.  IGEHO er alþjóðleg sýning þar sem finna má allt sem viðkemur rekstri hótela og veitingahúsa og sækja hana að jafnaði um 75.000 gestir hverju sinni, en sýningin er haldin annað hvert ár.

Samhliða sýningarinnar var keppnin Salon Culinaire Mondial haldin, en þessi keppni er liður í heimsmeistarakeppni kokkalandsliða sem haldin verður í Luxembourg í nóvember 2014 þar sem Íslenska Kokkalandsliðið kemur til með að keppa.  Nokkrir meðlimir í Kokkalandsliðinu voru á Igeho sýningunni að sjá og spekulera hvað hin liðin eru að gera.

Fleiri myndir frá sýningunni er hægt að skoða á vef Íslandsstofunnar með því að smella hér.

 

Mynd: Íslandsstofa

/Sverrir

twitter og instagram icon

 

† 1956-2015 | Sverrir er matreiðslumeistari, en hann lærði matreiðslu á Hótel Sögu og var við nám í hótelstjórnun í Álaborg. Hann hefur starfað mjög víða, m.a. á veitingastöðum í Englandi og Danmörku. Einnig á stöðum hér heima, m.a. Hótel Sögu, Óperu, Holliday Inn, Ránni og Þotunni í Keflavík, Fossnesti á Selfossi. Sverrir er beinskeyttur, opinskár og harðsoðinn penni.

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið