Vín, drykkir og keppni
Verðlaunavín Gyllta Glasið 2021 – Fyrri partur
Nú er nýlokin keppnin um Gyllta Glasið 2021 sem var er undir stjórn Vínþjónasamtaka Íslands. Verðflokkur vína í keppni í ár er frá 2.490 kr til 4.000 kr og völdu vínbirgjar vínin til í þessa keppni. Í þessum fyrri parti voru vín frá suður við miðbaug tekinn fyrir ásamt Norður Ameríku ásamt sérstökum rósavínsflokki, en þar var ekkert verðþak og máttu vínin koma hvaðan sem er úr heiminum, þurftu bara vera árgangsmerkt.
Vínin voru smökkuð blint af sérstakri dómnefnd sem Vínþjónasamtökin boðuðu til á Grand Hótel 9.maí sl. og eigum við í Vínþjónasamtökunum þeirra allra bestu þakkir fyrir aðstoðina, svo viljum við sérstakalega þakka Ásmundi á Grand Hóteli fyrir að veita okkur fyrstaflokks aðstöðu.
Yfirdómari var eins og fyrri ár Alba E H Hough margfaldur Íslandsmeistari vínþjóna ásamt sérstakri aðstoð frá vel völdu fagfólki og eiga þau þakkir fyrir að standa að stærstu blindmökkum sem fram fer á Íslandi ár hvert.
5 hvítvín, 10 rauðvín og 2 rósavín hlutu Gyllta glasið 2021 samkvæmt hlutföllum sem skiluðu sér. Vínin verða sérmerkt í Vínbúðum með merki Gyllta Glassins og gildir það fyrir árganginn sem fékk verðlaunin.
Verðlaunavínin
Hvítvín:
v.nr átvr
07948 Villa Maria Private Bin Sauvignon Blanc 2020, 3.290 kr
06520 Montes Alpha Chardonnay 2019, 3.298 kr
07880 J.Lohr Riverstone Chardonnay 2019, 3.582 kr
12412 Château St. Michelle Riesling 2019, 2.990 kr
077946 Villa Maria Private Bin Riesling 2019, 2.690 kr
Rósavín:
23281 Tommasi Baciorosa Appassionato 2020, 3.199 kr
25547 Torre Mora Scalunera Etna Rosato 2019, 2,399 kr
Rauðvín:
12671 Trivento Golden Reserve Malbec 2019, 3,099 kr
08023 J.Lohr Seven Oaks Cabernet Sauvignon 2018, 3.780 kr
10914 Emiliana Coyam 2018, 3.899 kr
21125 Montes Twins 2019, 2.499 kr
02497 Trapiche Gran Medalla Malbec 2017, 3.999 kr
05087 Catena Malbec 2018, 3.390 kr
06488 Lindemans Bin 45 Cabernet Sauvignon 2019, 2,499 kr
23865 Trapiche Perfiles Textura Finca Malbec 2018, 2.999 kr
25196 1000 Stories Cabernet Sauvignon 2018, 3.799 kr
11094 Beringer Founders Est Cabernet Sauvignon 2018, 2.999 kr
Vínþjónasamtökin vilja þakka sérstaklega öllum dómurum og birgjum fyrir frábæra þátttöku og óskum við sigurvegurum til hamingju.
Minni birgja á að panta miða hjá Leturprent. [email protected]
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðan
Nýr veitingastaður á Laugarvatni – Sunneva og Sæþór: Við viljum að allir sem koma líði eins og þeir séu heima hjá sér
-
Markaðurinn2 dagar síðan
Mesta úrval Japanskra hnífa á Íslandi
-
Keppni2 dagar síðan
Grétar Matthíasson er Meistari meistaranna
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðan
Nýtt veitingasvæði rís í austurenda Smáralindar – 13 nýir veitingastaðir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðan
Kristinn Frímann bauð upp á glæsilegt jólahlaðborð á togaranum Kaldbak – Myndir
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Mijita er fyrsti 100% glútenfríi veitingastaðurinn í Wolt appinu
-
Markaðurinn4 dagar síðan
Dill opnar á ný eftir breytingar – nú með nýju borðabókunarkerfi Noona
-
Keppni4 dagar síðan
Matreiðslukeppni stjórnmálaflokkana í húsi Fagfélagana