Viðtöl, örfréttir & frumraun
Kjötsúpueldun í beinni útsendingu fékk mikla athygli – Átta þúsund áhorf á viðburðinn – Sjáðu myndbandið hér

Gísli Matthías Auðunsson,matreiðslumeistari, eldaði gömlu góðu ömmukjötsúpuna í beinni útsendingu á samfélagsmiðlum síðastliðinn laugardag en um átta þúsund manns horfðu á útsendinguna.
Á laugardaginn, fyrsta vetrardag, var kjötsúpudagurinn haldinn með breyttu sniði vegna kórónuveirufaraldursins. Í stað uppákomu á Skólavörðustíg eins og undanfarin ár, eldaði Gísli Matthías Auðunsson, matreiðslumeistari, kjötsúpu í beinni útsendingu á Netinu frá Súlnasal Hótel Sögu.
Var um samstarfsverkefni Landssamtaka sauðfjárbænda og Sölufélags garðyrkjumanna að ræða og tókst vel að elda gömlu góðu ömmukjötsúpuna í beinni sem þjóðin hafði valið nokkrum dögum fyrr sem besta kjötsúpan á Facebook-síðu lambakjöts.
„Þrátt fyrir nokkra tæknihnökra þá gekk þetta stórvel og fengum við um átta þúsund áhorf á viðburðinn sem er nokkuð gott. Við munum síðan halda áfram að framhefja viðburðinn á síðunni okkar í um vikutíma í viðbót,“
segir Hafliði Halldórsson, framkvæmdastjóri Icelandic Lamb.
Vekja athygli á hráefninu
„Okkur finnst þetta mikilvægt samstarf því það er engin kjötsúpa nema að hafa grænmeti og lambakjöt, það getur ekki án hvors annars verið. Við höfum alltaf styrkt þennan viðburð, garðyrkjubændur hafa látið í té grænmeti í súpuna, rófur, kartöflur, gulrætur og hvítkál ef hefur þurft.
Það hefur verið gaman að fara niður eftir á Skólavörðustíg og smakka mismunandi útgáfur af súpum í gegnum árin á fyrsta vetrardag. Það er stemning að taka þátt í þessu og ánægjulegt að geta gert það. Þetta var gert öðruvísi núna vegna ástandsins og ég held að við höfum náð til yngri markhóps í gegnum samfélagsmiðlana. Þetta vekur vitund og það voru margir sem sáu útsendinguna og þó að allir hafi ekki horft frá upphafi til enda þá vekur þetta athygli á hráefninu sem slíku.
Þetta er hvatning fyrir fólk að fara út í búð og kaupa þessar afurðir, íslenskt grænmeti og lambakjöt og með þessu móti höfum við sennilega náð til þeirra sem ætluðu sér jafnvel ekki að elda kjötsúpu. Það að fá fólk til að dansa þennan dans í eldhúsinu og útbúa sína útgáfu af íslensku kjötsúpunni er mikilvægt,“
segir Kristín Linda Sveinsdóttir, markaðsstjóri Sölufélags garðyrkjumanna.
Kjötsúpueldun í beinni útsendingu (upptaka)
Mynd: bbl.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Markaðurinn4 dagar síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Keppni6 dagar síðanMikill skortur á fagmenntuðum framreiðslumönnum – fimm í námi við VMA
-
Frétt3 dagar síðanJökull Alexander Egilsson tekur við rekstri tíu hótela um land allt
-
Markaðurinn6 dagar síðanGerðu verðsamanburð áður en þú kaupir
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanÞjófar stálu 30.000 vínflöskum að verðmæti 700 milljóna króna



