Markaðurinn
Bragðbættir rjómaostar sem beðið hefur verið eftir
Rjómaostar eru í miklu uppáhaldi hjá matgæðingum landsins, hvort sem er í matargerð, á beyglur og brauð nú eða á ostabakkann. Eflaust munu margir gleðjast í næstu búðarferð því nú eru komnir á markað nýir bragðbættir rjómaostar frá MS.
Fimm tegundir eru í boði, hver annarri betri. Hreinn rjómaostur og rjómaostur með pipar eru endurbættar útgáfur rjómaosta sem áður voru á markaði en hinar þrjár tegundirnar eru glænýjar. Þetta eru rjómaostur með grillaðri papriku og chilli, rjómaostur með karamellíseruðum lauk og rjómaostur með graslauk og lauk.
Það verður spennandi að bæta þessum ljúffengu rjómaostum í matargerðina og hérna eru nokkrar hugmyndir um notkunarmöguleika.
Bragðbættir rjómaostar frá MS henta vel:
- Ofan á kex, brauð og beyglur
- Í sósugerð, bæði til að bragðbæta og þykkja þær
- Á pizzur og í pastarétti
- Í ofnbakaða rétti á borð við brauð- og fiskrétti
- Sem ídýfur með niðurskornu grænmeti og nachos flögum
- Í súpur og eggjahrærur
- Í hvað sem manni dettur í hug
-
Frétt4 dagar síðanMatreiðslumeistarinn Dóra Svavarsdóttir: Ferðalag skreiðarinnar er umfangsmikið og margbrotið
-
Keppni2 dagar síðanMyndir: Negroni vikan málaði bæinn rauðan
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanSHIRO, NO.17 og ĒN opna í miðborg Reykjavíkur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanÍsak Aron gefur út matreiðslubókina Bragð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanHaustborgarinn á Grill 66 er með kóresku „kicki“
-
Bocuse d´Or17 klukkustundir síðanMyndasafn: Glæsilegt sælkerakvöld með Bocuse d’Or kokkum Íslands
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanAurore: „Ég varð mjög nostalgísk þetta kvöld“
-
Markaðurinn20 klukkustundir síðanViltu öðlast ofurkrafta – Ertu að nýta gervigreindina í daglegu starfi?




