Frétt
Listería í graflaxi frá Ópal sjávarfangi
Matvælastofnun varar neytendur við neyslu á lotu nr. 01.40.49 af graflaxi frá Ópal Sjávarfangi vegna greiningar listeríu (Listeria monocytogenes). Fyrirtækið hefur innkallað graflaxinn af markaði í samráði við Matvælastofnun.
Í byrjun árs fannst Listería í graflaxi frá Ópal Sjávarfangi.
Sjá einnig: Listería í graflaxi frá Ópal Sjávarfangi
Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi lotu:
- Vöruheiti: Graflaxbiti, heill m/roði, lofttæmdur
- Framleiðandi: Ópal Sjávarfang ehf, Grandatröð 4, 220 Hafnarfjörður
- Síðasti notkunardagur: 25.12.2019 26.12.2019, 27.12.2019 30.12.2019. 31.12.2019, 01.01.2020
- Lotunúmer: 01.40.49
- Strikamerki; 23 273 28 00000 V
- Framleiðsluland: Ísland
- Dreifing: Verslanir 10-11, verslanir Hagkaupa, verslanir Nettó, verslanir Kjörbúðarinnar, verslanir Krambúðarinnar, Melabúðin, verslanir Iceland, Seljakör
Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og skila til verslunar eða fyrirtækisins gegn endurgreiðslu. Hægt er að hafa samband í síma 517 66 30 eða með tölvupósti [email protected] til að fá frekari upplýsingar.
Aukið eftirlit hefur verið með fyrirtækinu frá því að listería greindist í vörum þess í byrjun árs. Matvælastofnun tók sýni úr gröfnum og reyktum laxi í fyrirtækinu í desember og greindist listería í graflaxinum. Ópal sjávarfang hefur að kröfu Matvælastofnunar tekið reglulega sýni úr vörum þess til greiningar á listeríu. Listería hefur ekki greinst í innri eftirliti fyrirtækisins frá því að úrbótaraðgerðum lauk.
Listeria monocytogenes getur orsakað sjúkdóm bæði hjá mönnum og dýrum og kallast þessi sjúkdómur listeriosis. Einkenni sjúkdómsins eru mild flensueinkenni, vöðvaverkir, hiti og stundum ógleði og niðurgangur. Alvarlegri einkenni eru heilahimnubólga í ungbörnum, blóðeitrun og getur sjúkdómurinn einnig valdið fósturláti. Í einstaka tilfellum getur bakterían valdið dauða, þá er yfirleitt um að ræða einstaklinga sem eru með skert ónæmiskerfi.
Í flestum heilbrigðum einstaklingum veldur neysla á listeríumenguðum matvælum ekki sjúkdómi. Áhættuhópar eru barnshafandi konur, ófædd og nýfædd börn og einstaklingar með skert ónæmiskerfi. Hópsýkingar af völdum listeríu eru mjög sjaldgæfar, oftast er um að ræða einstaklingssýkingar.
-
Starfsmannavelta4 dagar síðan„Því miður dugði það ekki til“ eigendur Sjávarsetursins tilkynna lokun
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanDuck & Rose lokar á konudag – nýr staður tekur við undir nafninu Gamla Reykjavík
-
Markaðurinn5 dagar síðanNýtt íslenskt kerfi einfaldar máltíðapantanir, dregur úr matarsóun og tengist öðrum kerfum
-
Keppni4 dagar síðanAuddi Blö og Steindi Jr. verða kynnar á úrslitakvöldi Tipsý Bar
-
Markaðurinn4 dagar síðanNýtt hjá Garra: Mabrúka, handgerð krydd frá Túnis
-
Bocuse d´Or2 dagar síðan„Að gefast aldrei upp“, segir Sædís Hui í Bocuse d’Or teyminu
-
Markaðurinn5 dagar síðanÞarf alltaf að kaupa nýtt?
-
Keppni6 dagar síðanSkráðu barinn eða veitingahúsið þitt í Reykjavík Cocktail Week





