Frétt
Viðskiptatækifæri í vannýttum matvælum?
Við Íslendingar búum yfir frumkvöðlahjarta sem nýta þarf betur til að skapa verðmæti úr vannýttum matvælum og gjöfulli náttúru. Þannig má sporna gegn matarsóun og ýta undir viðskiptatækifæri sem ratar upp í munn og niður í maga.
Til að vekja athygli á þessu kallar Matarauður Íslands eftir hugmyndum frá neytendum og framleiðendum, ungum sem öldnum. Þessar hugmyndir munu samstarfsaðilar okkar, Hótel- og matvælaskólinn, nota við gerð smárétta og hnossgætis á vorönn 2020. Þann 1. janúar 2020 verður lokað fyrir skráningu nýrra hugmynda.
Til að taka þátt er farið inn á www.mataraudur.is. Þar er líka að finna uppskriftir að 10 hnossgætum sem voru sköpuð úr vannýttum hráefnum síðasta vor og hvetjum við alla til að kjósa það sem þeim líst best á.
Kennarar og nemendur við Hótel- og matvælaskólann munu velja þrjár innsendar hugmyndir um vannýtt hráefni og bjóða höfundum þeirra í spjall um mögulegar útfærslur ásamt viðtali við vöruhönnuð. Þetta er kjörið tækifæri fyrir þá sem langar að þróa viðskiptahugmynd eða bara kynnast sköpunarkrafti matreiðslumeistara og hönnuða.
Nánari upplýsingar gefur Brynja Laxdal verkefnastjóri Matarauðs Íslands í síma 8601969 eða [email protected] eða Kristín María Sigþórsdóttir hönnuður og verktaki hjá Matarauði Íslands 6966274 eða [email protected]
Matarauður Íslands er verkefni sem heyrir undir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og meðal verkefna þess er að draga fram matarmenningu og ýta undir verðmætasköpun í tengslum við matarauð okkar Íslendinga.
Mynd: aðsend
-
Keppni3 dagar síðanÍslenskir nemar keppa á Norrænu nemakeppninni í Svíþjóð
-
Bocuse d´Or3 dagar síðan„Ég var glaður og þakklátur fyrir að vera partur af þessu teymi“ segir Jakob Árni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanNýlegur veitingastaður og aukin áhersla á heildarupplifun hjá Bragðlaukum
-
Starfsmannavelta2 dagar síðanLamb Street Food og Mat Bar hætta rekstri
-
Markaðurinn3 dagar síðanLærðu að fanga augnablikið: Myndagerð fyrir samfélagsmiðla í veitingageiranum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun19 klukkustundir síðanPítsuofninn kominn á GOTT eftir lokun Pítsugerðarinnar
-
Markaðurinn3 dagar síðanNámskeið: Ægir Friðriksson matreiðslumaður kennir flökun á fiski
-
Frétt2 dagar síðanSmash Style hamborgarar innkallaðir vegna salmonellu




