Frétt
Te & kaffi og Innnes í samstarf á kaffimarkaðnum
Te & Kaffi og Innnes hafa undirritað samstarfssamning sem felur í sér að þjónusta á kaffi- og vélbúnaði Te & Kaffi á fyrirtækja- og veitingamarkaði verður í höndum Innness. Hið sama gildir um meirihluta smásölumarkaðarins.
Innnes verður dreifingaraðili á kaffivörum Te & Kaffi og jafnframt sjá um uppsetningu, þjónustu og viðhald á kaffivélum fyrirtækisins. Samstarfið mun hafa í för með sér tíðari og betri þjónustu fyrir viðskiptavini Te & Kaffi enda starfar hjá Innnes öflugur hópur starfsmanna sem leggur höfuðáherslu á lipra og góða þjónustu og persónuleg samskipti við viðskiptavini.
Þetta gefur okkur betra rými til að sinna okkar kjarnastarfsemi sem er framleiðsla á gæðakaffi og rekstur kaffihúsa. Innnes er rótgróið fyrirtæki og þekkt fyrir frábæra þjónustu. Við erum fullviss um að okkar viðskiptavinir muni upplifa þessar breytingar á jákvæðan hátt segir Guðmundur Halldórsson, framkvæmdastjóri Te & Kaffi.
Við erum stolt að Te & Kaffi hafi valið okkur sem samstarfsaðila. Landsmenn þekkja Te & Kaffi af því frábæra kaffi sem fyrirtækið framleiðir enda markaðsleiðandi á íslenskum matvörumarkaði. Við bindum miklar vonir við vörumerkið og samstarfið segir Leifur Örn Leifsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Innnes.
Te & Kaffi er leiðandi framleiðandi á íslenska kaffimarkaðnum og mun í framtíðinni einbeita sér að framleiðslu og vöruþróun á þeim markaði og annast rekstur kaffihúsa sinna.
Innnes ehf. er öflugt og rótgróið fyrirtæki með áralanga reynslu af kaffiþjónustu og er þekkt fyrir fyrsta flokks þjónustu við viðskiptavini sína á öllum sviðum.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanSlow Food á Íslandi heiðrar Dominique Plédel Jónsson
-
Keppni3 dagar síðanLeitað að bestu ostakökunni og brauðtertunni
-
Starfsmannavelta5 dagar síðanÍtalska keðjan Spaghetti House komin í þrot
-
Markaðurinn1 dagur síðanBeittir hnífar opna nýja vefverslun með opnunartilboðum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanFrá eldhúsinu til heimsfrægðar: Anthony Bourdain á hvíta tjaldið
-
Markaðurinn2 dagar síðanLóan komin og júnítilboðin hjá Nathan líka
-
Markaðurinn2 dagar síðanFljótlegur og bragðmikill taco-réttur fyrir fjölskylduna
-
Frétt1 dagur síðanSushi hrísgrjón innkölluð vegna lífrænna leysiefna



