Viðtöl, örfréttir & frumraun
Síldarminjasafnið á Siglufirði vinsælt í einkaveislur

Finnski utanríkisráðherrann kom í opinbera heimsókn til Siglufjarðar.
Að þessu sinni var það veitingadeild Rauðku á Siglufirði sem sá um matinn og þjónustu í Síldarminjasafninu.
Mynd: trolli.is
Síldarminjasafnið á Siglufirði er einn helsti áfangastaður ferðamanna þegar þeir eiga leið um bæinn, enda um að ræða eitt stærsta sjóminja- og iðnaðarsafn landsins.
Bátahúsið á Síldarminjasafninu er vinsælt í einkaveislur og hafa veitingahús á Siglufirði og nágrenni séð um veislurnar.
Í byrjun árs kom finnski utanríkisráðherrann í opinbera heimsókn til Siglufjarðar, ásamt Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra Íslands. Með þeim fylgdi föruneyti frá báðum löndum.
Á vefnum Trolli.is kemur fram að ísland er að taka við forystu í Norðurskautsráðinu af Finnum og verður í forystu þar næstu tvö ár. Í ráðinu eru einnig hin Norðurlöndin, Rússland, Kanada og Bandaríkin.
„Samskipti Íslands og Finnlands eru sérlega náin og góð, og málefni norðurslóða og Norðurskautsráðsins eru okkur afar hugleikin nú þegar Ísland tekur senn við keflinu af Finnlandi. Því var kærkomið að heimsækja Akureyri sem er hin eiginlega norðurslóðamiðstöð okkar Íslendinga og kynnast því merka starfi sem þar fer fram.
Þá er ávallt gaman að varpa ljósi á lífið utan höfuðborgarsvæðisins. Að þessu sinni kynntum við okkur þá uppbyggingu sem á sér stað á Siglufirði og víðar á Tröllaskaganum, og kunnum við heimafólki bestu þakkir fyrir höfðinglegar móttökur,“
sagði Guðlaugur Þór í fréttatilkynningu frá Utanríkisráðuneytinu.

Guðlaugur Þór Þórðarson, Helga Helgadóttir, bæjarfulltrúi í Fjallabyggð, og Timo Soini, utanríkisráðherra Finnlands.
Mynd: stjornarradid.is
Að þessu sinni var það veitingadeild Rauðku á Siglufirði sem sá um matinn og þjónustu.
Í boði var sjávarrétta-luncheon:
Kremuð sjávarréttarsúpa með bláskel, siglfirskum rækjum og hægelduðum þorsk.
Léttsaltaður þorskhnakki á kartöflu mauki með gulbeðjum, appelsínu, tómat döðlu “concasse” og “beurre blanc”.
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanSkráning hafin í Negroni vikuna 2026
-
Keppni3 dagar síðanAlþjóðlegt ævintýri hefst hjá Barþjónaklúbbi Íslands
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanFærri brugghús loka í Bretlandi
-
Markaðurinn6 dagar síðanUmhverfisvottuð gæði fyrir hótel og gististaði
-
Frétt6 dagar síðanVarað við skordýrum í dilli
-
Markaðurinn4 dagar síðanIðan fagnar 20 ára afmæli í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
-
Frétt4 dagar síðanInnihaldsupplýsingar vantar á Krónu pylsur
-
Markaðurinn3 dagar síðanRabarbara trifle með stökku krönsi


